Maí
Meirihlutaviðræður
Meirihlutaviðræður
Meirihlutaviðræður

29.05.2006 Maí

Framsókn og Samfylkingin skrifa undir viljayfirlýsingu um meirihlutaviðræður

Framsóknarmenn og Samfylkingin á Hornafirði hittust í gær til að ræða myndun meirihluta í Sveitarfélaginu Hornafirði. Skrifað var undir viljayfirlýsingu um meirihlutaviðræðurnar en í henni kemur fram að ekki verði rætt við aðra á meðan viðræður standa yfir. Áframhaldandi fundur verður haldinn í dag og ekki ólíklegt að kominn verði nýr meirihluti hér í sveitarfélaginu í dagslok. Að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar oddvita Samfylkingarinnar þá er ekki enn farið að ræða hvernig verður tekið á ráðningu bæjarstjóra. Albert Eymundsson hætti sem bæjarstjóri í síðustu viku og var hans síðasti starfsdagur 24. maí s.l. og á meðan ekki er búið að ráða í stöðuna þá gegnir Hjalti Vignisson stöðu bæjarstjóra.

Loka tölur voru birtar á Skjávarpi kl. 23:50 á kosningarkvöldinu og þá höfðu verið talin 1239 atkvæði og skiptust þau þannig | B-listi Framsókn 462 atkvæði - 38,76% með þrjá bæjarfulltrúa| D-listi Sjálfstæðisflokksins 429 atkvæði 35,99% með tvo bæjarfulltrúa | S listi Samfylkingar 301 atkvæði 25,25% með tvo bæjarfulltrúa | Auðir og ógildir 47- 3,05% | 80,51% kjörsókn | Á kjörskrá voru 1539

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica