Maí
Forvarnarvinna_1_2006
Forvarnarvinna_1_2006
Nemendum 8. bekk í Heppuskóla voru afhentar viðurkenningar fyrir forvarnavinnu vetrarins. Á myndinni er einnig Haukur Þorvaldsson. (@Árni)

26.05.2006 Maí

Viðurkenningar fyrir forvarnavinnu

Í dag var nemendum í 8. bekk í Heppuskóla afhentar viðurkenningar fyrir forvarnavinnu vetrarins. Í forvarnavinnunni voru unnar forvarnastuttmyndir þar sem efnistökin voru áfegni- tóbak- útivist og eiturlyf. Var nemendum skipt upp í hópa. Sérstök viðurkenning var veitt fyrir besta myndbandið sem Rauði hópurinn fékk en í því myndbandi var fjallaði á áhrifaríkann hátt um þær skelfinlegu afleiðingar sem það getur haft fyrir ungling að ánetjast eiturlyfjum. Fyrr í vetur var foreldrum og nemendum í skólanum boðið á sýningar á myndböndunum.
Myndirnar hafa nemendurnir unnið undir verkstjórn Árna Péturs Hilmarssonar kennara í skólanum og Hauks Helga Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúa. Auk þess að gera myndirnar hafa nemendurnir líka skrifað forvarnasögur sem birtust í Eystrahorni. Þá gerðu þeir einnig tillögu að forvarnabæklingum.

Í heimsókn forseta Íslands til Hornafjarðar í síðasta mánuði kom hann í Heppuskóla og vakti þessi forvarnavinna athygli hans. Óskaði hann eftir að fá send sýninshorn af forvarnaplaggötunum og stuttmyndunum. Í næstu viku verða nokkur forvarnamyndbönd sýnd á SkjáVarpinu.
Þetta er þriðji veturinn sem 8. bekkingar fara í slíka forvarnavinnu. Vinnan hófst veturinn 2003 með samstarfi Heppuskóla og Æskulýðs- og tómstundaráðs í forvörnum.
Þann vetur unnu nemendurnir forvarnaplaggöt og var sama þemað notað þá og í myndunum. Vöktu plaggötin athygli og hanga uppi í skólum, félagsmiðstöð og víðar.
Veturinn 2004 unnu nemendurnir forvarna auglýsingar sem sýndar voru fyrir nemendur og kennara og tókust vel.
Þessi vinna að forvarnaverkefnunum er liður í því að unglingarnir fái tilfinningu fyrir því að varast þær hættur sem að þeim steðja ef þau taka rangar ákvarðanir í lífinu og standa ekki fast á sínu og velji rétt.
Auk þess fá þau þjálfun í handritsgerð , myndatökum, leika, klippa og setja inn á mynd texta og hljóð.

Stöndum öll samna í baráttunni gegn vá vímu- og fíkniefna !

haukur@hornafjordur.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica