Maí
Útskrift FAS 2006
Útskrift FAS 2006
Eyjólfur Guðmundsson skólameistari FAS
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

21.05.2006 Maí

16 nemendur útskrifuðust sem stúdentar frá FAS

Í gær fram fór fram útskrift hjá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Aldrei áður hafa jafn margir stúdentar verið útskrifaðir frá skólanum í einu, en að þessu sinni voru það 16 nemendur sem útskrifuðust frá skólanum. Þeir eru Nína Einarsdóttir sem útskrifaðist af sjúkraliðabraut, nýstúdentar Andri Indriðason, Chiharu Kawai, Edda Bjarnadóttir, Einar Smári Þorsteinsson, Elvar Snorrason, Guðrún Einarsdóttir, Ingi Steinn Þorsteinsson, Ingibjörg Ævar Steinsdóttir, Lena Hrönn Marteinsdóttir, María Ingibjörg Úlfarsdóttir, Sara Eik Sigurgeirsdóttir, Sigurður Óskar Jónsson, Sveinn Rúnar Ragnarsson sem jafnframt dúxaði, Valgerður Hanna Úlfarsdóttir, Þorgrímur Tjörvi Halldórsson og Þóra Björg Gísladóttir.

Húsfylli var í Nýheimum við útskriftina og fyrir utan ræðuhöld og afhendingu þá söng Kvennakór Hornafjarðar tók nokkur lög.

Innritun nemenda fyrir haustönn er nú hafin og stendur til 12. júní nk. Nánari upplýsingar um innritunina í FAS er hægt að nálgast á vef skólans (www.fas.is). Þeir nemendur sem verða á Almennri braut þurfa að mæta í viðtal í skólann ásamt foreldrum vegna námsvals.
Þeir sem vilja hitta námsráðgjafa geta gert það 26. og 29. maí n.k. því þá verður hann við í skólanum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica