Maí
Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands
Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands
Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands

19.05.2006 Maí

Lopapeysutónleikar í Öræfunum á þriðjudagskvöld

Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands leggur í næstu viku af stað í söngferð til Orkneyja og Skotlands. Lagt verður af stað með Norrænu, höfð viðkoma í Færeyjum í dagsstund, einnig á Hjaltlandseyjum og þjóðlagahátíð á Orkneyjum heimsótt. Að endingu verður gengið á land á Skotlandi og flogið heim frá Glasgow. Á leiðinni austur ætlar kórinn að gista á Svínafelli í Öræfum, en þaðan kemur einn kórfélagi. Að kvöldi þriðjudagsins 23. maí ætlar kórinn að halda tónleika í skálanum á tjaldstæðinu í Svínafelli. Söngurinn hefst kl. 20:30. Efnisskráin er fjölbreytt, létt og skemmtileg eins og vænta má hjá ungu fólki í sumarbyrjun. Aðgangur er ókeypis en frjáls framlög vel þegin. Allir eru velkomnir að njóta kórtónlistar á björtu vorkvöldi.

Kór FSu var stofnaður á fyrstu árum skólans eða fyrir 23 árum og hefur starfað óslitið síðan, en það er nánast einsdæmi meðal framhaldsskólakóra. Kórinn er þó alltaf nýr eins og gefur að skilja. Skotlandsferðin verður án efa ævintýraleg og ríkir mikil tilhlökkun hjá krökkunum vegna ferðarinnar, sem þau hafa undirbúið hörðum höndum í allan vetur. Stjórnandi kórs FSu er Stefán Þorleifsson.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica