Maí
Ferðafélagið á leið sinni inn Kastárdal og yfir Kex
Ferðafélagið á leið sinni inn Kastárdal og yfir Kex
Ferðafélagið á leið sinni inn Kastárdal og yfir Kex (@RE)
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

18.05.2006 Maí

Kexganga

Fimmtudagskvöldið 11. maí fór vaskur hópur manna og kvenna í kvöldgöngu með Ferðafélagi Austur-Skaftafellssýslu. Ekið var austur að Syðra-Firði og gengið þaðan upp Kastárdal og síðan yfir Kex. Þegar komið var upp á Kexið blasti Stokksnesið við baðað í kvöldsól. Gangan tók um 3 tíma og voru þátttakendur sammála um það hve hressandi það væri að fara svona út undir bert loft reyna aðeins á sig.

Næsta ferð verður laugardaginn 20. maí, en þá verður farið á svipaðar slóðir og gengið fyrir Horn. Vonumst til að þátttaka verði góð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica