10 milljóna króna styrkur frá Alcoa til Þjóðgarðsins í Skaftafelli
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra tók í gær við 20 milljóna króna styrk úr hendi Bernt Reitans varaframkvæmdastjóra Alcoa. Styrkurinn er ætlaður til uppbyggingar þjóðgarða í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum. Helmingur þessara upphæðar, 10 m.kr. fer til Þjóðgarðsins í Skaftafelli og verður þeim varið til framkvæmda við Lakagíga segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli. Unnið verður að skipulagningu svæðisins, vega-og stígagerð og til að koma upp salernum þar uppfrá en engin hreinlætisaðstaða er þar. Framkvæmdir hefjast í sumar um leið og snjóa leysir og fært verður upp að Lakagígum en það er venjulega ekki fyrr en í lok júní.
Fjöldi ferðafólks leggur leið sína að Lakagígum yfir sumarið en þangað er um 40 km frá þjóðveginum, um einnar klst. akstur. Ragnar segir leiðina einungis færa á jeppum eða öðrum torfærubílum þar sem margar óbrúaðar ár eru á leiðinni er geta verið vatnsmiklar og jafnvel ófærar í miklum rigningum.





Skrifa athugasemd