Maí
Nýheimar
Nýheimar.

16.05.2006 Maí

Bein útsending frá Nýheimum í dag

Í dag kl. 17:00 verður bein útsending kosningaþáttar Svæðisútvarpsins á Austurlandi frá Nýheimum og er sent út á dreifikerfi Rásar 2 (RUV). Í þáttinn mæta efstu menn framboðslistanna hér í Sveitarfélaginu þar sem þeir munu svara pólitískum spurningum útvarpsmanna. Yfirskrift þáttarins er "Um hvað snúast sveitastjórnarkosningarnar á Hornafirði". Þetta er fjórði kosningaþáttur Svæðisútvarpsins af sex en þegar hefur verið fjallað um kosningarnar á Vopnafirði, Djúpavogi og Seyðisfirði. Kjósendur sem og aðrir eru velkomnir í Nýheima til að fylgjast með útsendingunni sem fer fram í sal Nýheima.

Muna - Rás 2 kl. 17:00 eða mæta í Nýheima og horfa á beina útsendingu

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica