Maí
Jóhanna Magnúsdóttir leikur slaðsaðann farþega á Flugslysaæfingu 2006
Jóhanna Magnúsdóttir leikur slaðsaðann farþega á Flugslysaæfingu 2006
Jóhanna Magnúsdóttir í hlutverki sínu sem slasaður farþegi á Flugslysaæfingu 2006 (@Vigdís)
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

16.05.2006 Maí

Jóhanna lék hlutverkið af fullri sannfæringu

Meðal þeirra mörgu sem þátt tóku í flugslysaæfingunni á Hornafjarðarflugvelli um helgina sl. var Jóhanna Magnúsdóttir fyrrum starfsmaður í flutningadeild KASK. Jóhanna var í hópi þeirra sem voru í hlutverki slasaðra og lék hún sitt hlutverk sitt svo vel og sannfærandi að hjálparliðum fannst sem þarna væri bláköld alvara á ferðum. Fréttamaður hafði samband við Jóhönnu og bað hana að segja hvernig þetta gekk fyrir sig. Ég var auðvitað máluð og lituð sem mikið slösuð og tók auðvitað þátt í hlutverkinu af fullri sannfæringu því til þess eru æfingar að þær séu sem raunverulegastar segir Jóhanna . Ég gargaði svo mikið á meðan verið var að slökkva í ,,flugvélinni´´ að einn slökkviliðsmaðurinn kom hlaupandi til mín til að hugga mig og biðja mig að slappa af, þetta yrði allt í lagi og þegar læknirinn benti á mig sem einn þeirra sem senda átti með flugvél gargaði ég nei,nei, ég fer ekki í flugvél. Ég bara lifði mig inn í hlutverkið og mér fannst gaman af að vera með fólkinu þarna í heilan dag og taka þátt í þessu, ég hef nóg af tíma þar sem ég er mest ein heima öll kvöld svo þetta var góð tilbreyting.

Fyrir fjórtán mánuðum varð Jóhanna fyrir því áfalli að fá sýkingu í vinstri höndina sem skjótt breiddist upp handlegginn svo taka varð hann af við öxl. Hún er ótrúlega dugleg að bjarga sér en segist ekkert gagn hafa af fjandans gervihandleggnum sem hún var látin fá en virkar ekki sem skildi og ekki fær hún greiddan ferðakostnað til stoðtækjasérfræðinga til að fá handlegginn í lag. Hún segist bara ætla að gefa þeim handlegginn aftur enda hafi hún aldrei beðið um hann.

Nú er þetta allt að baki segir Jóhanna, ég hef það gott og er komin í gott húsnæði sem hentar mér vel og ég held mínu striki eftir bestu getu, starfa í slysavarnafélaginu, fer í bocciu með öldruðum, sauma krosssaum og er nýbúin að vera á postulínsmálunar námskeiði. Eitt er þó það sem ég get ekki en það er að hnita slaufu.

Jóhanna, sem var formaður slysavarnafélagsins í 3 ár, segir að ein ástæðan fyrir þátttöku sinni í æfingunni hafi verið sú að þarna gat hún gert eitthvað að gagni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica