Maí
Albert Eymundsson
Albert Eymundsson
Albert Eymundsson bæjarstjóri

12.05.2006 Maí

Síðasti vinnudagur Alberts sem bæjarstjóra 24. maí

Á Bæjarstjórnarfundi sem fram fór í gær í Ekru og var síðan sendur út á Skjávarpi kom m.a. fram að síðasti vinnudagur Alberts Eymundssonar sem bæjarstjóra verður 24. maí n.k. Alberti voru færðar þakkir fyrir störf sín og árnaðaróskir. Elín Magnúsdóttir forystumaður framsóknarmanna færði honum blómvönd og þakkaði sérstaklega fyrir þeirra hönd. Albert sagði m.a. í lokin: "Fyrir sex árum tók ég að mér starf bæjarstjóra Hornafjarðar og var endurráðinn aftur árið 2002 þ.e. þetta kjörtímabil. Ég sagði á fyrsta fundi mínum að það væru forréttindi fyrir einstakling eins og mig að fá svona tækifæri þar sem hugsjónir mínar hafa alla tíð snúist um að vinna samfélaginu í þessu héraði eitthvert gagn. Það hef ég reynt að gera eftir bestu samvisku og getu en það er annarra að dæma um árangurinn. Niðurstöður sem ég kynnti með ársreikningnum áðan og yfirlit yfir kjörtímabilið ásamt umsögn endurskoðanda sýnir að ég má vera sáttur við viðskilnað minn.

Þegar ég tók við starfinu var ég meðvitaður um að því fylgdu góðar og gefandi stundir en jafnframt krefjandi á köflum og einnig að búast mætti við andstreymi því aldrei væri hægt gert svo að öllum líki. Ég tel mig hafa komist nokkuð vel af í samskiptum mínum við íbúa héraðsins og er þakklátur fyrir það umburðarlyndi sem fólk hefur almennt sýnt mér í starfinu.

Síðasti starfsdagur minn verður 24. maí nk. Og þess vegna er þetta síðasti bæjarstjórnarfundurinn sem ég sit sem bæjarstjóri. Ég vil því fá að nota tækifærið og flytja öllum sem ég hef átt samstarf og samskipti við bestu þakkir. Sérstaklega vil ég þakka samstarfsfólki mínu í ráðhúsinu sem ég hef mest umgengist í daglegum störfum svo og fulltrúum í bæjarstjórn og nefndum sveitarfélagsins.

Ég er ekki síður bjartsýnn á framtíð héraðsins nú og ég hef alltaf verið. Hver sem þróun mála verður þá mun áfram þrífast hér gott samfélag í fallegu umhverfi þar sem öllum á að geta liðið vel."

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica