30 sjúklingar sem verða mismikið lemstraðir eftir flugslysið
Nú líður að flugslysaæfingunni sem verður haldin inn á flugvelli á laugardag. Þetta er í 17 skiptið sem Flugmálastjórn setur upp æfingu af þessu tagi, hún er ekki sú stærsta sem haldin hefur verið en er sérstök vegna fjarlægða Hornafjarðar til næstu bæja. Á æfingunni á laugardaginn verða u.þ.b. 30 sjúklingar sem verða mismikið "lemstraðir" eftir flugslysið. Svokallaðir ráðgjafar eða starfsmenn á vettvangi verða 32 en það eru aðilar sem koma frá öllum þeim starfseiningum sem vinna að þessari æfingu. Ef taldar eru þær mannstundir sem hafa farið í undirbúning og æfinguna sjálfa má gera ráð fyrir um það bil 1057 klukkustundum. Undirbúningurinn hófst fyrir síðustu áramót. Ef raunverulegt slys ber að höndum á Hornafirði eða á landsvæðinu þar í kring er mjög langt í alla aðstoð og þar sem slys gera ekki boð á undan sér er gott að viðbragðsáætlun sé klár og æfð. Næstu sjúkrahús frá Hornafirði eru langt í burtu eða á Selfossi í vesturátt og Neskaupsstað í austurátt. Næsta heilsugæsla er á Djúpavogi í austurátt og á Kirkjubæjarklaustur í vesturátt. Sem þýðir að næsta hjálp ef slys verður er í 100 km. fjarlægð.
Æfingar Flugmálastjórnar Íslands er einn höfuðvettvangur til þróunar og prófana á nýjungum í hópslysaskipulagi landsins. Á æfingunni hér verða í notkun ný "greiningaspjöld" sem hafa verið í notkun á síðustu flugslysaæfingum en hafa verið í þróun síðustu ár. Greiningarspjöldin eru notuð til að greina hversu slasaðir sjúklingarnir eru og senda þá á viðeigandi stað miðað við áverka. Rétt greining getur skipt gríðarlega miklu máli og bjargað mannslífi. Á þessari æfingu verður einnig tekið í notkun nýtt talninga- og skráningakerfi en það kerfi heldur einnig utan um þá sem í slysinu lenda og tryggir yfirsýn yfir slasaða sé slík að allir fái þá aðhlynningu sem þeir þurfa.
Stjórnun - Áætlun - Bjargir - Framkvæmd
Flugslysaæfingin á Hornafirði verður einnig nýtt í að prófa og þróa svokallað SÁBF kerfi sem er starfsskipulag sem gríðarlega mikilvægt er að virki vel. Þetta kerfi er neyðarkerfi sem tekið var upp um árið 2000 en það vinnur að því að allar þær einingar eða starfshópar sem koma að slysi eins og sett verður á svið, vinni saman eftir sömu vinnuaðferðum.
SÁBF stendur fyrir "Stjórnun" ,"Áætlanir","Bjargir","Framkvæmd" .
Þeir aðilar eða starfseiningar sem koma að æfingunni eru: Flugmálastjórn Íslands, Landspítali Fossvogi, Landhelgisgæslan, Neyðarlínan, Rannsóknarnefnd flugslysa, Rauði Krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Landsbjörg, Slökkvilið Akureyrar og Höfuðborgarsvæðisins og Landsflug. Margir heimamenn taka þátt í æfingunni. Þessir aðilar eru Almannavarnarnefnd A-Skaptafellssýslu, Björgunarfélag Hornafjarðar, Flugmálastjórn á Hornafjarðarflugvelli, Hafnarkirkja, Heilbrigðisstofnun Suðausturlands, Hornafjarðarbær, Lögreglan á Hornafirði, Rauðakrossdeild A-Skaptafellssýslu, Slysavarnadeildin Framtíð, Slökkvilið Hornafjarðar, starfsmaður flugrekanda á Hornarfjarðarflugvelli og svæðisstjóri Landsbjargar.
Allar upplýsingar um æfinguna er að finna á heimasíðu Flugmálastjórnar Íslands
Sjá hér
-------------------------
Hjördís Guðmundsdóttir,
upplýsinga- og kynningarfulltrúi Flugmálastjórnar Íslands
hjordisg@caa.is





Skrifa athugasemd