Maí
Kusk
Kusk
Kusk

11.05.2006 Maí

Sumarball á Hótel Höfn um helgina

Nú um helgina nánar tiltekið á laugardagskvöld verður eftir nokkuð hlé dansleikur á Hótel Höfn en eins og vegfarendur hafa orðir varir við þá hafa verið miklar framkvæmdir þar á bæ. Það verður hornfirska hljómsveitin KUSK sem mun sjá til þess að halda uppi stuðinu á mögnuðum dansleik. Hljómsveitina skipa fimm Hornfirðingar sem allir hafa áralanga reynslu af því að skemmta fólki með söng, hljóðfæraslætti og ýmsum öðrum uppákomum. Á bassa er Bjartmar Ágústsson, Sigurður Mar Halldórsson á gítar, Heiðar Sigurðsson er söngvari og hljómborðsleikari, Kristján Hauksson söngvari og stuðbolti en hann sem gekk til liðs við sveitina í vetur. Á trommum er Ólafur Karl Karlsson og er þetta í síðasta skipti sem hann trommar með sveitinni, a.m.k. í bili þar sem hann er að flytja erlendis. Á dansleiknum verður tilkynnt hver mun taka við af honum. Hljómsveitin hefur gert garðinn frægan hér heima og erlendis og var hún m.a. á þorrablóti Íslendingafélagsins í Stokkhólmi sem haldið var í febrúar s.l. Töluvert er framundan hjá hljómsveitinni á næstu mánuðum en auk þess að spila á böllum víðsvegar um landið er verið að vinna að upptökum á frumsömdu efni sem gæti komið út á plötu í fyllingu tímans.

Dansleikurinn hefst kl. 23 og verður spilað til kl. 03

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica