Matvöru- og byggingavöruverslun á Höfn
Mikið hefur verið rættu um verslunarmál á Höfn undanfarnar vikur og m.a. hver muni vera framtíð byggingarvöruverslunarinnar einu versluninni sem eftir er af verslunum Kaupfélags Austur-Skaftfellinga. Pálmi Guðmundsson kaupfélagsstjóri segir að verið sé að vinna í þessum málum, við erum búnir að vera í viðræðum við Húsasmiðjuna og við reiknum með að hún taki við starfsemi byggingavöruverslunar á Hornafirði fyrir sumarið en stjórnir félaganna eru ekki búnar að skrifa undir samninginn, þetta er alveg að skella á. Pálmi er viss um að Kaupfélag Héraðsbúa sem á verslunarhúsin Miðbæ og á Vesturbraut, muni standa vel að rekstri matvörubúða þegar leigutími þeirra við Kaupás rennur út í byrjun næsta árs og að þar sé fyrir hendi metnaður til að gera betur en fyrir var.
Þegar Pálmi var spurður um hvort ekki hafi komið til greina að selja fasteignir Skálatinds hér í heimabyggð svaraði hann því til að það hafði enginn hér haft áhuga á að kaupa húsin og það var engin launung á að þau væru til sölu, Skálatindur varð að selja og þarna fékkst gott verð fyrir þessar fasteignir (ekki gefið upp hvað verðið var)o g ég tel að vel hafi verið staðið að þessu.
Halldóra B.Jónsdóttir formaður bæjarstjórnar og 1. maður á D lista sjálfstæðismanna hefur haft samband við forsvarsmann Kaupáss og kannaði hvort vilji væri fyrir bættum samskiptum á matvörumarkaði á Höfn. Svarið var að Kaupás væri tilbúinn að koma aftur með verslunina Krónuna á Höfn ef þeir fengju endurnýjaðan leigusamning fyrir 11-11 í Miðbæ sem rennur út í janúar 2007. Ákveðin svör hafa ekki fengist frá forsvarsmönnumKHB.
Halldóra óskaði eftir viðræðum um þessi verslunarmál staðarins á síðasta fundi bæjarráðs en segist hafa fengið litlar undirtektir. Hún óskaði eftir að fyrirspurnin yrði bókuð.





Skrifa athugasemd