Maí
Brúin yfir Traðarkotsgil
Brúin yfir Traðarkotsgil
Brúin yfir Traðarkotsgil
Mynd 2 af 2
1 2

10.05.2006 Maí

Eitt af forgangsmálum að gera veginn um Öxi að heilsársvegi

Vegagerðin hefur í vetur skoðað aðstæður fyrir jarðgöng í Lónsheiði og breytingar á veginum um Öxi. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir þetta vera svona frumskoðun en engin ákvörðun komin, allavega er þetta þó byrjunin. Gerð var úttekt á veginum um Öxi og ljóst að þar virðist hægt að gera brattalítinn heilsársveg þar sem mesti halli yrði 7-8 gráður en er nú 15-16° þar sem brattast er. Nýr vegur yrði því álíka brattur og vegurinn um Fagradal. Nýr vegur verður á svipuðum slóðum og hvergi vandamál með breytinguna fyrr en með veginn niður í Berufjörð en hann yrði lagður á svipuðum slóðum og vegurinn er núna. Í sumar eru settar 15 millj.kr til vegagerðar um Öxi. Stytting á veginum með þessum fyrirhuguðu breytingum verður 2-3 km en miklu fljótfarnari. Leiðin um Öxi frá Djúpavogi til Egilsstaða er rúmum 60 km. styttri en ef farið er um Breiðdalsheiði og rúmlega 70 km. styttri en leiðin um Fáskrúðsfjarðargöng og ætti því að vera eitt af forgangsmálum í vegagerð að koma þarna upp heilsársvegi .

Reynir segir að segja megi að búið sé að ákveða jarðgöng í Lónsheiði ,,í framtíðinni´´, og áætlað er að göngin komi rétt ofan við Traðarkotsgilsbrúna að sunnan og út á móts við Rjúpnadal að norðan og yrðu þau um 2,5 km á lengd. Með þessum göngum styttist hringvegarleiðin um 12-13 km og vegfarendur sleppa við hættulegasta kafla hringvegarins og varla efast nokkur vegfarandi sem fer um Hvalnes og Þvottárskriður um nauðsyn jarðgangna milli Lóns og Álftafjarðar og hversu mikið hagsmunamál þessi framkvæmd yrði.

Mikið grjóthrun hefur verið í skriðunum í vetur og talsvert um skemmdir á farartækjum en ekki orðið slys og má örugglega þakka það starfsmönnum Vegagerðarinnar á Höfn sem fara kvölds og morgna og ef með þarf á öllum tímum sólarhrings að hreinsa grjót af veginum.

Reynir segir að kostnaður við hreinsun á veginum hafi verið um 5 m.kr. á ári en sl. ár var hann 15 m.kr. Fyrirhugað er að fara í lagfæringu á veginum í skriðunum á næsta ári með svipuðum framkvæmdum og í voru í Kambaskriðum milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar en eftir að úttektin var gerð á Lónsheiðinni er ákveðið að lágmarka þá aðgerð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica