Sérkennilegt og fallegt sólsetur yfir jökli síðustu daga
Hornfirðingar hafa orðir varir við mjög sérkennilegt og fallegt sólsetur síðustu tvo daga. Dumbrauður litur hefur verið í kringum sólina og hún skemmtilega rauðgul. Skýringuna má rekja til þurramisturs sem eru örsmáar agnir í loftinu sem gera þessar litabreytingar. Samkvæmt samtali mbl.is við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing hjá Veðurstofunni þá segir hann þetta loft koma frá Suður-Póllandi því þeir eigi eftir að taka til í sínum umhverfismálum og hætta að brenna brúnkolum eins og Bretar gerðu í kringum 1980",. Agnirnar eiga ættir sínar að rekja til iðnaðarmengunar en eiga ekkert skylt við svifryk sem er heimatilbúin mengun. Þurramistur samanstendur af ögnum af smæstu gerð og þegar sólin er lágt á lofti og geislar hennar þurfa að fara um langan veg í gegnum andrúmsloftið, þá síast út aðrir litir en rauður og bleikur því hinar smáu agnir dreifa öðru sólarljósi og virka eins og sía. "Þetta fyrirbæri gæti vel sést aftur í kvöld því það er mikið mistur yfir landinu," sagði Einar að lokum við mbl.is. Hann þvertók fyrir að þetta loft gæti verið hættulegt, því það væri yfir Evrópulöndunum meira og minna allan ársins hring.
Nú er bara að bíða þar til kvöld tekur og sjá hvort sama sjónarspil endurtekur sig og þá er um að gera að taka fram myndavélina.





Skrifa athugasemd