Fuglalífið hér er í góðum málum og rólegt
Fuglalífið hér er í góðum málum og rólegt sagði Björn Arnarson fuglaáhugamaður á Höfn þegar hann var spurður um hvort mikið finnist hér af dauðum fuglum.Hér hefur minna fundist af dauðum fuglum en vanalegt er um þetta leiti árs og sama er að segja um aðra staði á landinu, núna er bara miklu meira tilkynnt um þá sem finnast. Fyrir nokkrum dögum voru tekin hér 64 sýni frá ýmsum fuglategundum og send utan til rannsóknar vegna fuglaflensu og reyndust þau öll neikvæð. Sýnin voru tekin úr heiðar-og grágæsum, álftum, hrossagauk, heiðlóu, jaðrakan og stelk. Fleiri sýni verða send á næstunni. Björn segir að í vor og það sem af er sumri hafi lítið verið um komur flækingsfugla, það sé með allra minnsta móti en það gæti breyst næstu daga því spáð er austan átt.
Kríufjöldinn í Óslandi virðist vera svipaður og venja er og ekki að sjá að þær forðist svæðið þar sem sinubruninn varð í vor og segir Björn útlit á að þar verði aðal varpsvæðið í sumar því mikið af kríum byrjuðu strax að halda sig þar.





Skrifa athugasemd