Maí
Flugslysaæfing 2000
Flugslysaæfing 2000
Frá flugslysaæfingu sem haldin var árið 2000

09.05.2006 Maí

Sjálfboðaliða bráðvantar í hlutverk slasaðra

Vegna undirbúnings fyrir flugslysaæfingu á Hornafirði laugardaginn 13.maí verður röskun á starfsemi heilsugæslunnar dagana 11-13 maí þar sem allt tiltækt starfslið heilsugæslunnar vinnur að undirbúningi æfingarinnar svo sem mögulegt er. Ef nauðsynlega þarf að ná í lækni laugardaginn 13.maí milli kl 12.00-16.00, skal hafa samband við neyðarlínuna og mun hún koma boðum til vakthafandi læknis. Enn vantar fólk til að taka þátt í flugslysaæfingunni og engin virk æfing verður án þátttakenda. Til að svona æfing beri tilætlaðan árangur þurfum við hjálp heimamanna sagði Einar Sigurjónsson lögreglumaður, og við yrðum afskaplega þakklát öllum þeim sem mögulega geta lagt okkur lið við að gera æfinguna sem virkasta og að við náum sem bestri þjálfun því enn bráðvantar okkur a.m..k. 20 manns frá 14 ára aldri, konur og karla, til að leika slasaða.

Auk heimamanna koma að þessari slysaæfingu starfsfólk frá Flugmálastjórn, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi, Ríkislögreglustjóra og Rannsóknarnefnd flugslysa.

Þeir sjálfboðaliðar sem vilja koma og leika sjúkling eru beðnir að snúa sér til lögreglunnar hér á Höfn og láta skrá sig í síma 478-1282.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica