Mikilvægt að sveitarstjórnarmenn taki enn meira tillit til félagsmanna
Á fjölmennum aðalfundi Félags opinbera starfsmanna á Suðurlandi (FOSS) sem haldinn var á Hótel Selfossi í gærkvöldi var m.a. samþykkt áliktun þar sem félagsmenn skora á bæjar- og sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi að koma meira að kjarasamningagerð við félagið í stað þess að fela Launanefnd sveitarfélaga fullnaðarumboð. Dæmin hafa sannað að þar sem sveitarstjórnamenn koma að samningaferlinu við bæjarstarfsmannafélögin hefur tekist betri sátt um launkjör starfsmanna, þar sem meiri þekking er á aðstæðum. Kjarasamningur milli Starfsmannafélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar er gott dæmi um þetta. Félagsmenn FOSS hér í Sveitarfélaginu Hornafirði eru um 40 talsins og er einn stjórnarmaður héðan, Torfi Friðfinnsson hafsögumaður hjá Hornafjarðarhöfn.
Torfi segir mikilvægt að sveitarfstjórnarmenn hér í Sveitarfélaginu taki enn meira tillit til félagsmanna.





Skrifa athugasemd