Maí
Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu á Snjótind í Álftafirði (@RE)
Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu á Snjótind í Álftafirði (@RE)
Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu á Snjótind í Álftafirði (@RE)
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

09.05.2006 Maí

Á leiðinni opnaðist sýn niður Hvaldal og til sjávar

Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu á Snjótind í Álftafirði

Þann 29. apríl stóð Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu fyrir gönguferð á Snjótind í Álftafirði undir leiðsögn Hauks Elíssonar á Starmýri. Lagt var af stað frá tjaldstæðinu á Höfn kl. 9 um morguninn þrátt fyrir að ekki væri alveg tryggt að við fengjum bjart veður. Við keyrðum upp eftir gamla Lónsheiðarveginum austanverðum og byrjuðum gönguna í 178 metra hæð en Snjótindur er 807 metra hár. Á leiðinni opnaðist sýn niður Hvaldal og til sjávar. Við náðum toppnum björtum, en sáum skýjabakkana hrannast upp í vestri. Það gustaði nokkuð þarna uppi, enda oft sagt að það gusti um þá sem eru á toppnum. Frábært útsýni yfir allan Álftafjörð. Leiðin niður var auðveld því gott var að renna sér niður snjóskaflana á rassinum. Síðan lá leiðin að ísilögðu Svarthamravatni sem er gamall gígur, og endaði við minnisvarðann hjá Þvottá.

Næsta ferð verður fimmtudaginn 11. maí, þá verður kvöldganga upp Kastárdal og yfir Kex. Mæting er klukkan 19. við tjaldstæðið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica