Maí
Flugslysaæfing árið 2000
Flugslysaæfing árið 2000
Frá Flugslysaæfingu árið 2000 (úr myndasafni Skökkviliðs Hornafjarðar)
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

05.05.2006 Maí

Flugslysaæfing á Hornafjarðarflugvelli

Laugardaginn 13.5. nk. mun verða haldin á Hornafjarðarflugvelli æfing í viðbrögðum við flugslysi í samvinni við Flugmálastjórn, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og fleiri. Sett mun verða á svið atvik þar sem flugvél með u.þ.b. 30 manns innan borðs brotlendir á eða við flugbrautina og verður það verkefni viðbragðsaðila á Höfn að koma þolendunum til bjargar, vernda vettvang og rannsaka líkt og um raunverulegt slys væri að ræða. Að lausn verkefna æfingarinnar munu koma allir viðbragðsaðilar á Höfn; lögregla, slökkvilið, starfsfólk á Hornafjarðarflugvelli, starfsfólk HSSA og félagar í Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands og Björgunarfélags Hornafjarðar ásamt fleirum. Það þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi æfingar sem þessarar og mun hún tvímælalaust verða til að bæta samhæfingu milli viðbragðseininga og hæfni þeirra til að takast á við hvers konar vá sem upp kann að koma í héraðinu, hvort sem um flugslys væri að ræða, sjóslys eða annars konar vá.

Til að æfingin verði sem gagnlegust fyrir þá aðila sem að henni koma er nauðsynlegt að njóta aðstoðar sjálfboðaliða. Ekki hefur gengið sem best að fá sjálfboðaliða til að gefa kost á sér þennan dag en þess er eindregið óskað að t.d. félagar í félagasamtökum, starfsfólk vinnustaða, frambjóðendur til bæjarmála og nemendur í skólum, eða aðrir sem sjá sér fært að gefa vinnu sína einn dag eða part úr degi, taki sig saman og safni liði í um 40 manna sveit sjálfboða til að leika þolendur slyssins og til að aðstoða við förðun sjúklinga.

Þeim sem geta með þessum hætti komið til liðs við björgunaraðila og þannig gera æfinguna mögulega, er bent á að snúa sér til lögreglunnar á Höfn til að skrá sig.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica