Maí
Bónus á Höfn
Bónus á Höfn
Bónus á Höfn

02.05.2006 Maí

Skora á Bónuseigendur að opna hér verslun

Almenn óánægja er á Hornafirði með verslunarástandið á staðnum og ekki síst beinist sú óánægja að verslunarháttum 11-11 þar sem ekki hefur verið staðið við gefin loforð eigendanna um lækkað vöruverð og góð tilboð í kjölfar þess að versluninni Krónunni var lokað. Vefurinn hafði samband við Önnu Maríu Kristjánsdóttur sem er forsvarsmaður undirskriftasöfnunar þar sem Hornfirðingar skora á Bónuseigendur að opna hér verslun og segir hún að listar hafi legið frammi í eina viku á nokkrum stöðum og hafi 770 manns skrifað undir áskorunina. Ég veit að þetta var of stuttur tími með listana, sagði Anna María, því fólk hefur verið að koma og spyrja um þá og á sumum stöðum voru listarnir teknir burt þegar þeir voru orðnir fullir en ekki bætt við blöðum eins og gert var á öðrum stöðum. Til stóð að reyna að fá fulltrúa frá Bónus til að mæta á staðinn 1.maí en ekki var hægt að verða við þeirri ósk en Svanur Valgeirsson starfsmannastjóri Bónuss mælti með að listinn yrði sendur til Bónuseigenda og var það gert.

Í bréfi Önnu Maríu til Bónuss segir: Ég sem húsmóðir hér á staðnum er orðin þreytt á því samkeppnisleysi sem hér ríkir með eina 11/11 verslun á staðnum, að ég tali nú ekki um verðlagið, þetta endar bara á þann veg að það verður opnað útibú frá geðdeild hér á staðnum vegna þess að nánast hver einasta húsmóðir er að fara yfir um á geði á því að versla í þessari EINU verslun staðarins og láta enda ná saman í heimilishaldi. Í haus á þessum undirskriftarlista skorum við á Bónus að íhuga þann möguleika að opna hér verslun, við búum í 2200 manna sveitarfélagi, og myndu nærsveitir örugglega nýta sér þetta. Það eru 220 km á Egilsstaði þar sem næsta lágvöruverslun er í austur frá okkur og í vestur eru 402 km í Selfoss.

Mikið hefur verið rætt um framtíð matvöruverslunar á Hornafirði eftir lokun Krónunnar Kaupfélag Héraðsbúa er eigandi að Miðbæ þar sem 11-11 verslun er og eins á Vesturbraut 3 þar sem Krónan var til húsa og leitaði því vefurinn frétta hjá Birni Ágústssyni fulltrúa kaupfélagsstjóra KHB sem sagði að ekki væri komin nein ákvörðun um hvað gert yrði við þessi verslunarhúsnæði. Vökull Stéttarfélag hefur óskað eftir fundi með stjórnendum Kaupfélags Héraðsbúa en ekki er ljóst hvenær sá fundur getur orðið.

Þar sem framboðin þrjú eru farin að undirbúa sín stefnumál leituðum við svara hjá þeim sem eru í fyrstu sætum listanna hvort þeir myndu beita sér fyrir úrbótum í verslunarmálum í sveitarfélaginu.

Árni Þorvaldsson sem skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar á Hornafirði svaraði: Samfylkingin mun, ef hún fær til þess kjör, gera allt sem í hennar valdi stendur til að breyta þessu ástandi, að sjálfsögðu innan þeirra marka sem sveitarstjórnarstigið leyfir. Við munum berjast fyrir breyttu ástandi í verslunarmálum því þau eru algjörlega óviðunandi eins og þau eru núna.

Reynir Arnarson sem skipar 1. sæti á lista hjá Framsókn sagði: Við höfum ekki rætt þetta mikið undanfarið en ég get bara svarað fyrir mig, að ég mun vissulega styðja það ef einhver vill koma hingað og setja upp lágvöruverslun, en framsókn hefur ekki rætt þetta sérstaklega.

Halldóra Bergljót Jónsdóttir sem skipar 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins sagði: Við í Sjálfstæðisflokknum ræðum þessi mál mikið því þetta eru mál sem hvíla þungt á íbúum hér. Ég hef enga töfralausn á þessu en vil ræða við Kaupás og fá að vit hvað er framundan hjá þeim og hvað við eigum í vændum.


 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica