Maí
Gjöf til HSSA
Gjöf til HSSA
Við afhendingu á gjöf Þorrablótsnefndar Nesja og Lónmanna til HSSA, Ragnhildur Magnúsdóttir héraðslæknir, Sigrún Harpa Baldursdóttir, Þorbjörg Gunnarsdóttir og Ester Þorvaldsdóttur hjúkrunarfræðingur.

02.05.2006 Maí

Þorrablótsnefnd Nesja og Lónmanna færðu HSSA gjöf

Þorrablótsnefnd Nesja og Lónmanna færðu Heilbrigðisstofnun Suðausturlands (HSSA) í dag 50 þúsund kr. í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavél og búnaði. Fulltrúar nefndarinnar þær Þorbjörg Gunnarsdóttir og Sigrún Harpa Baldursdóttir afhentu Ragnhildi Magnúsdóttur héraðslækni og Ester Þorvaldsdóttur hjúkrunarfræðingi gjafabréf fyrir upphæðinni og fengu þær góðar þakkir fyrir. Kvenfélagið Ósk í Suðursveit hefur sent 50 þús.kr. í söfnunina og gefandi sem ekki er vitað hver er lagði eina millj.kr. inn á söfnunarreikninginn. Ragnhildur segir að nú hafi safnast rúmlega sú upphæð sem stefnt var á í upphafi en heildarkostnaður á tækjabúnaðinum er ekki kominn á hreint ennþá þar sem ekki er búið að ganga endanlega frá tilboðum. Búið er að panta hluta af tækjunum og verið að ganga frá tilboðum og pöntunum í það sem eftir er.

Eitthvað mun heildarkostnaður hafa hækkað vegna breyttrar stöðu á fjármálamarkaðinum og sagði Ragnhildur að frétt um kaup og kostnað tækjanna yrði birt þegar allt lægi fyrir.
Þegar Ragnhildur og Ester voru spurðar um hvað væri næst á listanum yfir það sem væri bráðaðkallandi kom svarið samstundis ,,fæðingarrúm?? það er það alnauðsynlegasta þegar myndavélin verður komin, eitt af því sem hefði þurft að fá fyrir ári en engin fjárveiting verið til fyrir því. Yrði afgangur af þeim peningum sem safnast hafa til myndavélakaupanna sögðu þær að þeim yrði varið til kaupa á einhverju af því heilsugæsluna bráðvantar, en þar er af mörgu að velja.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica