Eldur og ís á Hótel Höfn fyrir forsetahjónin
Nú er allt á fullu við að undirbúa hátíðarkvöldverð forseta Íslands sem verður á Hótel Höfn í kvöld kl. 18:30. Boðið verður upp á hornfirska humarveislu í forrétt sem er samsett úr nokkrum glæsilegum humarréttum, í aðalrétt verður að sjálfssögðu boðið upp á hornfirska hreindýrasteik með beikonvöfðum strengjabaunum og confit kartöflum. Í eftirrétt verður "Eldur og ís á Hótel Höfn" en það er réttur sem er einkennandi fyrir þá náttúruperlu sem hér er í ríki Vatnajökuls og verður hluti af því sem hótelið mun bjóða upp á sínum matseðli. Að sögn Óðins Eymundssonar þá er verkefni sem þetta mjög skemmtilegt og kallar fram allt það besta hjá starfsfólki Hótelsins, en það er einnig einkennandi fyrir það góða andrúmsloft sem er í bæjarfélaginu.
Eins og þeir hafa sér sem hafa lagt leið sína á Hótelið þá eru þar framkvæmdir í fullum gangi við að klæða hótelið að utan með keramik flísum og álplötum. Þeim framkvæmdum fer senn að ljúka og eftir stendur eitt glæsilegasta hótel landsins.





Skrifa athugasemd