Apríl
Hofgarður
Hofgarður
Úr skólastarfinu í Hofgarði 6. mars 2006

25.04.2006 Apríl

Skólastjórinn þurfti að keyra að Kotá til að komast í símasamband

Eftir eldingaverðrið í Öræfum síðustu helgi en þá sló út rafmagni sem olli því að veituspenna fór á símabúnaðinum á Háöxl og urðu því margir bæir í Öræfum símasambandslausir. Samkvæmt upplýsingum frá Evu Magnúsdóttur upplýsingafulltrúa Símans þá bárust viðvaranir um bilunina Kerfisvöktun klukkan 18:40 á sunnudagskvöld og strax á mánudagsmorgun fóru tæknimenn Símans frá Reykjavík austur. Við skoðun á búnaði kom, í ljós að bilanirnar voru víðtækari en búist var við og tímafrekt að gera við það sem bilaði. Vinnu lauk og farsímasamband komst aftur á um klukkan 23:30 í gærkvöldi en þar sem sækja þurfti varahluti til Reykjavíkur vegna bilunar á búnaði sem flytur samböndin á Hofgarði sem einnig skemmdist í eldingaveðrinu komst símasamband ekki á Hofsbæina fyrr en um hádegisbilið í dag.

Til að ná sambandi við umheiminn eftir bilunina þá hefur Pálína þurft að keyra að Kotá til að komast í GSM samband. Pálína segir símann vera öryggistæki og því skiptir miklu máli að viðgerð fari strax fram, og getur þess að í leik- og grunnskólanum í Hofgarði séu 15 börn og því mjög mikilvægt að komast í símasamband strax ef eitthvað kemur uppá segir Pálína.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica