Allt á fullu við undirbúning fyrir sumarið
Þessa dagana er allt á fullu við undirbúning fyrir sumarið segir Einar Björn Einarsson staðarhaldari á Jökulsárlóni. Hjólabátarnir að verða klárir eftir yfirhalningu sem fram fer yfir vetrartímann, en bátarnir eru allir teknir upp og fluttir út í Ósland þar sem Einar Björn er með aðstöðu. Við flytjum bátana svo og annan búnað sem notaður er á lóninu í byrjun maí því fyrstu túrarnir út á lónið hefjast um miðjan maí. Þessa dagana er verið að auglýsa eftir fólki til starfa á lóninu og geta áhugasamir nálgast upplýsingar á atvinnusíðunni hér á vefnum. Jökulsárlón er mjög vinsæll vinnustaður enda hefur Einar Björn verið duglegur við að gera vel fyrir sitt starfsfólk, m.a. hefur boðið því erlendis eftir sumartörnina.
Um 25 starfsmenn starfa við þjónustuna á Jökulsárlóninu yfir sumartímann og til 15. september.





Skrifa athugasemd