Apríl
Forsetahjónin á svölum Alþingishússins
Forsetahjónin á svölum Alþingishússins
Húrrahróp af svölum Alþingishúss 1. ágúst 2004 (@forseti.is)

21.04.2006 Apríl

Dagskrá forsetaheimsóknar í næstu viku

Eins og áður hefur komið fram hér á vefnum þá kemur forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú í opinbera heimsókn til Austur-Skaftafellssýslu í næstu viku. Búið er að skipuleggja dagskrá heimsókninarinnar sem hefst að morgni þriðjudagsins 25. apríl og lýkur að kvöldi miðvikudagsins 26. apríl. Albert Eymundsson bæjarstjóri, Páll Björnsson sýslumaður og aðrir forsvarsmenn Hornafjarðar taka á móti forsetahjónunum klukkan níu á þriðjudagsmorgni á Hornafjarðarflugvelli. Þaðan verður haldið að leikskólunum Lönguhólum og Krakkakoti þar sem leikskólastjórar, leikskólabörn og starfsfólk kynna skólana. Frá leikskólum liggur leiðin í Ekruna, íbúðir aldraðra á Höfn og miðstöð félagsstarfs þeirra en þar munu forsetahjón kynna sér aðbúnað aldraðra og hlýða á Kór aldraðra syngja nokkur lög. Á Hjúkrunarheimilinu á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands hitta forsetahjónin Sólveigu Pálsdóttur frá Svínafelli í Öræfum sem nú er elst Íslendinga, 108 ára gömul.

Eftir viðkomu á Dagvist fatlaðra tekur við fjölþætt dagskrá í Nýheimum. Forseti ávarpar nemendur og starfsfólk Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu og svarar spurningum nemenda á sal, forsetahjón snæða hádegisverð með kennurum, starfsfólki og nemendum og kynnast starfsemi annarra stofnana í Nýheimum, Frumkvöðlaseturs og Háskólaseturs.
Eftir hádegi liggur leiðin í grunnskólana tvo sem starfa á Höfn, Hafnarskóla þar sem nemendur 4.-7. bekkjar stunda nám og Heppuskóla sem hýsir 8.-10. bekk. Þaðan verður haldið að höfuðstöðvum líftæknifyrirtækisins NorðurBragðs þar sem Halldór Árnason framkvæmdastjóri og starfsfólk kynna gestum starfsemina. Í sjávarútvegsfyrirtækinu Skinney-Þinganesi taka Aðalsteinn Ingólfsson framkvæmdastjóri og aðrir forsvarsmenn á móti gestum og eftir skoðunarferð um fyrirtækið drekka forsetahjónin kaffi með starfsfólkinu.

Síðdegis þriðjudaginn 25. apríl halda forsetahjón í siglingu út í Hornafjarðarós með Lóðsbátnum Birni lóðs. Loks munu þau skoða Jöklasýninguna undir leiðsögn Sverris Scheving Thorsteinssonar.
Um kvöldið er efnt til glæsilegrar fjölskylduhátíðar í Íþróttahúsinu á Höfn í Hornafirði með fjölþættri dagskrá þar sem forseti mun m.a. afhenda Hvatningu til ungra Íslendinga og fjölmargir hornfirskir listamenn koma fram. Fjölskylduhátíðin hefst kl. 20 og eru allir velkomnir á hana.

Að morgni miðvikudagsins hefst dagskrá forsetahjóna klukkan 8:45 með ferð um nýju jarðgöngin yfir í Lón og aftur um Almannaskarð til baka að Seljavöllum þar sem húsráðendur kynna búskapinn, nútímalegt fjós og kartöflurækt. Frá Seljavöllum liggur leiðin aftur til Hafnar þar sem forseti mun setja málþing í Nýheimum kl. 10:15 sem ber heitið Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls.
Skömmu fyrir hádegi miðvikudaginn 26. apríl heimsækja forsetahjónin Nesjaskóla þar sem börn í 1.-3. bekk stunda nám sitt. Frá Nesjaskóla verður haldið að Smyrlabjörgum þar sem heimilisfólk kynnir sauðfjárbúskap sinn og býður til hádegisverðar.
Í Hrollaugsstaðaskóla taka kennarar og nemendur á móti forsetahjónum og þaðan liggur leiðin að Hala í Suðursveit þar sem kynnt verður starfsemi Þórbergsseturs. Frá Hala verður haldið að Jökulsárlóni og eftir stutta siglingu um lónið verða bræðurnir á Kvískerjum sóttir heim. Eftir viðkomu í Grunnskólanum í Hofgarði halda forsetahjónin í Skaftafell og fræðast um starfsemi þjóðgarðsins.

Opinberri heimsókn forsetahjóna til Austur-Skaftafellssýslu lýkur með kveðjukaffi sem boðið er til að Hótel Skaftafelli.



Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica