Apríl
Gauti Árnason
Gauti Árnason
Gauti Árnason

21.04.2006 Apríl

Ráðinn í stöðu matráðs í eldhúsi HSSA

Tveir sóttu um stöðu matráðs í eldhúsi Heilsugæslustöðvar Suðausturlands og var Hornfirðingurinn Gauti Árnason matreiðslumaður ráðinn í starfið. Gauti er giftur Ragnheiði Rafnsdóttir, Breiðdælingi, og eiga þau 4 börn. Gauti nam sitt fag á Hótel Höfn og lauk sveinsprófi í matreiðslu frá Hótel og veitingaskóla Íslands í janúar 1997. Síðan hefur hann unnið við sitt fag á hinum ýmsu stöðum, m.a. á veitingastöðunum Einari Ben og Hótel Loftleiðum. Í tvö ár var hann kjötmeistari í Nóatúnsbúðum en fór síðan í eigin rekstur með Árna Stefáni bróður sínum. Þar voru þeir bræður að afgreiða mat í fyrirtæki, fyrir eldriborgara og í grunnskóla. Einnig ráku þeir veislueldhús í Glæsibæ. Eftir að 5 ára rekstri lauk flutti fjölskyldan aftur á Höfn og hefur Gauti starfað sem rekstrarstjóri eldhúss hjá Fosskraft sf, og stjórnað þar 200 manna mötuneyti, en Fosskraft sf er að byggja stöðvarhúsið í Fljótsdal fyrir Kárahnjúkavirkjun.

Gauti er mjög spenntur fyrir þessu nýja starfi og hlakkar mikið til að flytja endanlega heim, það er bæði með búsetu og atvinnu. Guðrún Júlía Jónsdóttir hjúkrunarforstjóri segir að vel hafi gengið að fá ófaglært starfsfólk í sumarafleysingar en enn vantar tvo hjúkrunarfræðinga og erfiðlega gengur að fá lækna til starfa í lengri tíma. Allt hjúkrunarrými á hjúkrunarheimilinu er fullt og sama er að segja um dvalarheimili fyrir aldraða þar er allt fullskipað.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica