Apríl
Aðalbjörn Úlfarsson
Aðalbjörn Úlfarsson
Aðalbjörn Úlfarsson

19.04.2006 Apríl

"Oft ganga pestir af ýmsu tagi"

Aðalbjörn Úlfarsson á Dvalarheimilinu á Höfn afhent Heilsugæslustöðinni í dag 200 þúsund kr. gjöf í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaðinum. Aðalbjörn dvelur á Dvalarheimilinu Skjólgarði sem nú er flutt í nýtt húsnæði á Víkurbraut 26. Guðrún Júlía Jónsdóttir hjúkrunarforstjóri sagði að nú væru endar alveg að nást saman í söfnuninni, þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel og með þessari góðu samstöðu tekst að búa heilsugæslustöðina okkar þessum nauðsynlega búnaði. Gengið verður frá pöntun tækjanna á föstudaginn.


Eins og allir vita þá er Aðalbjörn mikill hagyrðingur og þetta mælti hann við afhendinguna

Oft ganga pestir af ýmsu tagi
Oft læt ég svona flakka
Ef heilsa manna helst í lagi
Heilsugæslunni ber að þakka.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica