Apríl
Í sláturhúsinu 19.september
Kind
Kind (úr myndasafni)

19.04.2006 Apríl

Sveitarfélagið vill selja fimmtán og hálft ærgildi

Á bæjarstjórnarfundi nýlega kom fram að Sveitarfélagið Hornafjörður á fimmtán og hálft ærgildi og einnig að þau væru til sölu. Helst af öllu vill bæjarstjórn selja þau innan héraðsins, en rétt er að taka það fram að þessi ærgildi eru aðeins á pappírum en ekki í lifandi fé. Ærgildin eignaðist bærinn með jörðinni Hafnarnesi fyrir allmörgum árum. Grétar Þorkelsson hjá Búnaðarsambandi Suðurlands segir að kaupverð á hvert ærgildi sé um það bil 20-30 þúsund kr. Hverju ærgildi sem er í framleiðslu fylgir framleiðsluréttur fyrir 18.2 kg af kjöti með beingreiðslu frá ríkinu. Grétar segir að helst sé eitthvað um að bændur sem eru aðeins að bæta við fjárstofn sinn kaupi nokkur ærgildi í einu en þetta þyki dýr fjárfesting og lengi að borga sig upp.

Þeir sem einhvern áhuga hafa á að fá sér kindur eða bara ærgildi geta snúið sér til Sveitarfélagsins. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica