Apríl
Ragnhildur, Steinunn og Gudru Júlia
Ragnhildur, Steinunn og Gudru Júlia
Ragnhildur, Steinunn og Guðrún Júlia við afhendinguna á gjafabréfinu.

18.04.2006 Apríl

Enn bætist við í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaðinum

Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja í Hvammi í Lóni kom á Heilsugæslustöðina á Höfn í dag og afhenti gjafabréf upp á kr. 500 þúsund í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaðinum. Guðrún Júlía Jónsdóttir hjúkrunarforstjóri og Ragnhildur Magnúsdóttir héraðslæknir þökkuðu þessa höfðinglegu gjöf. Einnig hafa borist í söfnunina kr. 200 þús. frá Krabbameinsfélagi Suðausturlands, 250 þúsund frá einstaklingi, sem ekki vill láta nafn síns getið og systkini Gunnhildar Gunnarsdóttur færðu heilsugæslunni gjöf í minningu hennar. Þetta hefur gengið alveg frábærlega og núna í vikulokin verður gengið frá pöntun á myndavélinni og þeim búnaði sem henni tilheyrir og á hún að vera komin í notkun um mánaðarmót maí?júní sagði Guðrún Júlía.

Heildar kostnaður verður ekki ljós fyrr búið er að ganga endanlega frá kaupunum gjafafjárhæðin hefur verið færð í evrur og verð tækjanna er í evrum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica