Apríl
Öræfaferðir 200
Öræfaferðir 200
Öræfaferðir 200 (@Einar)
Mynd 1 af 3
1 2 3

15.04.2006 Apríl

200 sinnum á toppi Hvannadalshnúks

Það var stór stund hjá Einari E. Sigurðssyni leiðsögumanni Öræfaferða sl. mánudag þegar hann stóð í tvö hundraðasta sinni á toppi Hvannadalshnúks, í einstakri veðurblíðu. Þegar vefurinn hafði samband við Einar í vikunni var hann að koma úr ferð á Svínafellsjökul, það var bara svona smá skreppur sagði hann og þegar hann var spurður um hvernig honum hefði verið innan brjósts þegar hann stóð á toppnum í ferð nr.200 var svarið; ég var bara rosalega þakklátur skaparanum fyrir að gefa mér þetta allt, útsýnið var einstakt og birtan svo falleg, skýjahulan hafði hreinsast burt svo himininn var heiður og blár og við sáum út um allt. Svo bætti nú skaparinn um betur í tilefni dagsins ( ég veit að hann stjórnar þessu öllu) og gaf okkur það besta skíðafæri, sem ég hef fengið, alla leiðina niður svo að frá gígnum vorum við aðeins um hálfa klst niður. Mér leið svipað þegar ég stóð á toppnum í minni fyrstu formlegu leiðsöguferð um Hvítasunnuna 1994.

Einar og hópur hans sem í voru fjórar bandarískar fjallaskíðastelpur ásamt frönskum ljósmyndara frá Salomon, fyrirtæki með skíðabúnað, einnig var með í ferðinni Egilsstaðarbúinn Hjálmar Jóelsson 65 ára skíðakappi, sem ekkert gaf unga fólkinu eftir í göngunni. Lagt var af stað um kl 10.30, og farið Hnappaleiðina, komið á toppinn rétt fyrir 16.30 og til baka að bílnum kl 19.00.
Fólkið var alsælt með ferðina og þær voru ófáar ljósmyndirnar sem teknar voru og koma til með að prýða heimasíðu fyrirtækisins o.fl. Stelpurnar höfðu unnið skíðaferð til Íslands hjá Salomon og voru búnar að vera á norðurlandi í leiðinda veðri og höfðu ekki séð glóru svo þetta var vissulega toppurinn í víðari merkingu þess orðs.

Margt fer öðruvísi en maður ætlar og hefur það sannast á Einari því þegar hann 21 ára fór sína fyrstu ferð á Hvannadalshnjúk með 30 öræfingum í ungmennafélagsferð var hann ákveðinn í að þetta færi hann ekki aftur. Ekki leið þó á löngu þar til að vinir og kunningjar fóru að biðja hann að koma með þeim upp á hnúkinn þar sem hann rataði leiðina og afleiðingarnar voru svo þær að tíu árum seinna stofnaði hann ásamt fjölskyldu sinni fyrirtækið Öræfaferðir og hefur mikið meira en nóg að gera. Einar hefur ekki tekið lærlinga í leiðsöguna þar sem þetta er svo óviss vinnutími og allt veltur á veðri og færð, en það styttist í að synir hans verði nógu gamlir til að taka þátti í leiðsögustarfinu.

Nánast er fullbókað í allar ferðir hjá Einari á Hvannadalshnúk fram í miðjan júní og farið er að bóka Hvítasunnuferðir fyrir næstu tvö ár en það er vinsælasti tíminn fyrir þessar ferðir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica