Bæjarbúar, tökum saman höndum við árlega vorhreinsun!
Í tilefni af opinberri heimsókn Forseta Íslands þann 25. - 26. apríl n.k. og vegna ábendinga frá íbúum sveitarfélagsins, vill tækni og umhverfissviði Hornfjarðar óska eftir því við forstöðu- og umsjónarmenn opinberra stofnanna, sem og bæjarbúa alla, að taka saman höndum og gera vorhreingerningu á lóðum sínum, runnum, beðum og nánasta umhverfi í fyrrafalli þetta vorið. Mikið hefur borið á rusli í bænum og þá aðallega að það safnast saman í runnum og beðum okkur til ósóma. Félagasamtök hafa þegar gert átak á vegum sveitarfélagsins á opnum svæðum en víða er ábótavant við lóðir fyrirtækja, verslana, stofnana og íbúðarhúsa. Einnig er mikið um bílhræ í bænum og viljum við benda á að móttaka bílhræja er á gámastöð og hægt er að fá greitt fyrir bílhræin hjá sýslumanni.
Starfsmenn Áhaldahúss geta lagt garðeigendum lið. Hafa má samband við Tæknideildina og þeir munu gera það sem hægt er til að aðstoða.
Tæknideildin hvetur bæjarbúar til að taka til hendinni og efni til t.d sameiginlegra hreinsunardaga í sinni götu eða sínu hverfi og geri sér svo glaðan dag að lokinni hreinsun t.d með grillveislu eða álíka.
Tækni og umhverfissvið Hornafjarðar





Skrifa athugasemd