Apríl
Öræfajökull
Öræfajökull
Öræfajökull
Mynd 2 af 2
1 2

12.04.2006 Apríl

Kvískerjasjóður úthlutar styrkjum

Kvískerjasjóður, sem stofnaður var af Umhverfisráðuneytinu, til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum, úthlutar nú styrkjum í þriðja sinn. Hlutverk hans er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknastyrkja til einstaklinga og stofnana. Sjóðurinn hefur ýtt mjög undir auknar rannsóknir á svæðinu og þannig náð megintilgangi sínum að viðhalda því merka rannsókna- og vísindastarfi sem Kvískerjaheimilið er þekkt fyrir. Stjórn sjóðsins ákvað að veita liðlega þrem milljónum króna í styrki að þessu sinni. Níu umsóknir bárust og ákveðið var að styrkja sjö verkefni að þessu sinni.


Fimm verkefnanna lúta að víðtækum rannsóknum á Öræfajökli og áhrifum hans á landmótun, byggð og mannlíf í Öræfum. Þetta eru verkefnin:

  • Eldgos í Öræfajökli 1362, sem Dr. Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur vinnur að.
  • Landslag og jöklar í nágrenni Kvískerja við landnám, á höndum Eyjólfs Magnússonar, doktorsnema, Helga Björnssonar jöklafræðings og Finns Pálss. rafmagnsverkfræðings.
  • Úttekt á jarðminjum í Skaftafellsþjóðgarði, sem Helga Davids, jarðfræðingur vinnur að.
  • Jökulhlaup af völdum eldgosa í Öræfajökli, Matthew James Roberts, jöklafræðingur.
  • Rannsóknarholur vegna fornleifa í Öræfum. Verkefni á könnu Fornleifafélags Öræfa, í umsjá Dr. Bjarna F. Einarssonar fornleifafræðings og fleiri.


Einnig hlutu styrk verkefnin Fjöldi tófugrenja og útbreiðsla tófu í Öræfum sem Hafdís Roysdóttir starfsmaður Skaftafellsþjóðgarðs hefur umsjón með. Faglegur ráðgjafi þess er Páll Hersteinsson, prófessor í villtum spendýrum við Háskóla Íslands og Þekkingarbrunnur fortíðar - þekkingargrunnur framtíðar, sem Háskólasetur á Hornafirði hefur veg og vanda af. Markmið þess er að taka saman og skrásetja á skipulegan hátt fræðastarf Kvískerjabræðra á liðinni öld og gera það aðgengilegt, þannig að rannsóknarmenn framtíðarinnar geti byggt ofan á þann grunn þekkingar sem þeir hafa byggt upp.

Í stjórn Kvískerjasjóðs eru Sigurlaug Gissurardóttir, sem er formaður, Albert Eymundsson og Einar Sveinbjörnsson.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica