Apríl
Hvítasunnusöfnuðurinn
Hvítasunnusöfnuðurinn
Hvítasunnusöfnuðurinn skemmti í Miðbæ um síðustu helgi.

11.04.2006 Apríl

Söngur og lofgjörð á nokkrum stöðum í sveitarfélaginu

Það var mikið um að vera hjá Hvítasunnusöfnuðinum á Hornafirði um síðustu helgi sem var með söng og lofgjörð á nokkrum stöðum í sveitarfélaginu. Um kl.15.00 komu leiðtogar Hvítasunnusafnaðarins á Hornafirði þau Matthildur Þorsteinsdóttir og Einar R. Sigurðsson ásamt lofgjörðarhóp frá Hvítasunnukirkjunni í Vestmannaeyjum í Miðbæ og sungu og spiluðu fyrir fjölda áheyrenda. Þetta var yndislegt sagði Matthildur, við nutum þess að hitta fullt af fólki þarna og vonum að það hafi líka notið þess að hlusta á okkur. Við erum búin að syngja með lofgjörðarhópnum alla helgina, fórum á dvalarheimilið og sungum fyrir fólkið þar, vorum með tvær samkomur í kirkjunni okkar á Hafnarbraut 59 og sú síðasta var á sunnudagskvöldið í Hofgarði.

Einn verslunareigenda í Miðbæ sagði að þetta hefði verið ánægjuleg tilbreyting, fallegur söngur og góð stemning á staðnum.
Hvítasunnukirkjan á Hornafirði er með vakningarsamkomur alla sunnudaga kl.16;00 þar sem orð Drottins er boðað í orði, söng og vitnisburðum. Bænastundir eru alla miðvikudaga kl. 20;00 með lofgjörð, bæn og orð Guðs talað.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica