Apríl
Skóflustunga að sundlaug
Skóflustunga að sundlaug
Skóflustunga að sundlaug
Mynd 2 af 3
1 2 3

11.04.2006 Apríl

Fyrsta skóflustunga tekin fyrir nýrri sundlaug

Framkvæmdir hófust í morgun með fyrstu skóflustungu fyrir nýju sundlauginni sem byggð verður við Íþróttahúsið. Halldóra B. Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar, Elín Magnúsdóttir formaður bæjarráðs ásamt þeim Reyni Arnarssyni og Birni Emil Traustasyni bæjarfulltrúum voru viðstödd ása. Það var Friðrik Ingvaldsson formanni bygginganefndar sundalaugar sem settist upp í gröfuna og tók fyrstu skóflustunguna. Albert Eymundsson bæjarstjóri var staddur í Reykjavík. Nú verður skipt um jarðveg og settur burðarlagspúði og farg ofan á púðann til þess að láta svæðið síga. Síðan verður fylgst með siginu og þegar það er orðið lítið hefjast framkvæmdir við mannvirkið sjálft sem er reiknað með að verði n.k. júlí.

Útboð í fergingu fyrir framkvæmdasvæði sundlaugarinnar fór fram fyrir skemmstu og var það Ólafur Halldórsson sem var með lægsta tilboðið, hann bauð 7,6 millj. sem var 82,86% af kostnaðaráætlun. Aðrir sem buðu í verkið voru Rósaberg ehf með 7,7 millj (84,31% miðað við kostnaðaráætlun), Jarðverk ehf með 12.2M (133% miðað við kostnaðaráætlun). Kostnaðaráætlun var 9,2 milljónir.

Kostnaður við sundlaugina eru 330 milljónir og á hún að vera tilbúinn í júlí 2007.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica