Apríl
Skinney- Þinganes býður starfsfólki í Evrópuferð
Í tilefni 60 ára starfsafmælis útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Skinneyjar-Þinganess hf. hefur stjórn félagsins ákveðið að bjóða starfsfólki fyrirtækisins í helgarferð til einhverrar borgar í Evrópu í haust. Þó svo að félagið hafi orðið til í núverandi mynd árið 1999 eru ræturnar dýpri. Borgey var stofnuð 11. apríl árið 1946, Skinney í maí 1968 og Þinganes 20. maí 1972. Félögin voru sameinuð undir kennitölu elsta fyrirtækisins og er miðað við stofnár þess sem stofnár félagsins. Hjá fyrirtækinu vinna í dag um 170 manns og gerð eru út 8 skip.
Hægt er að nálgast sögu félagsins hér





Skrifa athugasemd