Apríl
Gönguferð upp í Almannaskarð
Gönguferð upp í Almannaskarð
Gönguferð upp í Almannaskarð
Mynd 1 af 3
1 2 3

07.04.2006 Apríl

Gengið meðfram Rauðabergsfjalli á Mýrum

Fimmtudaginn 30. mars fór Ferðafélagið í gönguferð upp í Almannaskarð. Lagt var upp frá tjaldstæðinu um sexleytið síðdegis í lögreglufylgd, því hugmyndin var jú að ganga í gegnum göngin, en það er ekki leyfilegt nema í fylgd lögreglu. Hópurinn alls 16 manns, var á öllum aldri allt frá fjögra ára til sextugs. Það gustaði aðeins um okkur í upphafi en það var náttúrlega ágætis logn inni í göngunum. Upp Skarðsdalinn var aðeins á fótinn, en þegar upp kom blasti auðvitað Hornafjörður við í allri sinni dýrð baðaður í kvöldsólinni. Við fundum skjólsælan stað til að borða nestið okkar og viti menn, finnast þá ekki pönnukökur upprúllaðar með sykri þar undir steini, sem einn fyrirhyggjusamur ferðafélaginn hafði komið þar fyrir. Það var sko aldeilis frábært að sitja þarna efst í Almannaskarði borða pönnsur og hlusta á fróðleik sem ferðanefndin hafði tekið saman um samgöngur um Almannaskarð fyrr og nú.

Næsta ferð á vegum félagsins verður nú á laugardaginn, en þá verður gengið meðfram Rauðabergsfjalli á Mýrum, þar er eitthvað af hellum og ekki ólíklegt að huldufólk búi þarna í einhverjum steinum. Þetta er frekar létt ganga og að mestu á jafnsléttu. Gönguferðir eru afar holl hreyfing og ekkert jafnast á við útivist í góðum hóp. Þetta er kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að gera eitthvað saman og því ekki að byrja páskafríið á gönguferð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica