Aðalfundur Hornfirska skemmtifélagsins
Hornfirska skemmtifélagið heldur aðalfund sinn miðvikudaginn 5. apríl kl. 20:30 í bíósalnum í Sindrabæ (ath breyttan fundarstað). Spennandi verkefni eru framundan hjá félaginu en áformað er að setja upp tónlistardagskrá í haust eins og undanfarin ár og einnig er undirbúningur fyrir Norðurljósablús 2007 þegar hafinn. Það er því nóg pláss fyrir áhugasamt fólk í Hornfirska skemmtifélaginu og eru allir velkomnir á aðalfundinn. Nánari upplýsingar um dagskrá fundarins eru á vef félagsins skemmtifelag.is. Hornfirska Skemmtifélagið hefur ekki setið auðum höndum frá stofnun þess. Fyrsta verkefni félagsins var sýningin "Slappaðu af!" sem var frumsýnd á Hótel Höfn október 2002 og var sýnd þar nokkrum sinnum við góðar undirtektir. Annað verkefnið nefndist "Með allt á hreinu" og var einnig sýnt á Hótel Höfn í október 2003. Þar voru lögin og húmorinn úr Stuðmannamyndinni góðkunnu tekin fyrir. Sýningin sló rækilega í gegn og á þriðja hundrað manns hvaðanæva af landinu lögðu leið sína til Hornafjarðar til að sjá sýninguna.
Þriðja verkefni félagsins var "Diskó", og var það frumsýnt á Hótel Höfn 1. október 2004. Í sýningunni fluttu sjö söngvarar og fimm manna hljómsveit alla heitustu diskósmellina sem hljómuðu í Hollywood við Ármúla og fleiri stöðum á diskótímanum. Stemmningin í salnum var ólýsanleg og gestirnir dönsuðu á stólum og borðum. Sýningin Rokk í 50 ár var sýnd á Hótel Höfn í október 2005 þar sem Andrea Jónsdóttir, dagskrárgerðarmaður á Rás 2 gekk til liðs við Skemmtifélagið og hafði hún umsjón með lagavali.
Síðasta verkefni sem félagið stóð fyrir var "Norðurljósablús" fór fram á Höfn í byrjun mars. sl. og lýsir grein Stefáns Ólafssonar (Norðurljósablús - rós í hnappagatið) því sem segja þarf um verkefnið.





Skrifa athugasemd