Apríl
Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)
Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)
Úr Ríki Vatnajökuls, frá Breiðamerkursandi (úr myndasafni @ebe)

02.04.2006 Apríl

Fengu verðlaun fyrir athyglisverðasta og besta básinn á Ferðatorgi 2006

Í gærkvöldi afhentu Pétur Rafnsson formaður Ferðamálasamtaka Íslands og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra Ferðamálasamtökum Austurlands verðlaun fyrir athyglisverðasta og besta básinn á ferðatorgi 2006. Unnur Sveinsdóttir frá Stöðvarfirði hannaði básinn. Verðlaunaafhendingin fór fram á Hótel Sögu þar sem saman voru komin um 400 manns sem eru þátttakendur í Ferðatorgi 2006 og Matur 2006. Meðal þeirra voru var stór hluti erlendra gesta. Fyrir hönd Ferðamálafélags A-Skaft. voru það Guðrún Jónsdóttir og Guðbrandur Jóhannesson sem kynntu ferðaþjónustu í Hornafirði á Ferðatorgi 2006.

Sýningin hófst á föstudaginn og líkur í dag sunnudag. Hún er öllum opin.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica