Apríl

Forsetaheimsókn 26.apríl 2006

Þetta var alveg ótrúlegt, aldeilis meiri háttar ferð - 27.04.2006 Apríl

Í gær héldu forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff ásamt sýslumannshjónunum Páli og Ólafíu, Albert bæjarstjóra, bæjarstjórnarmönnum og öðru fylgdarliði, í Suðursveit þar sem komið var við í Hrollaugsstaðarskóla, í Þórbergssetri á Hala og að Jökulsárlóni. Við lónið var Einar Björn staðarhaldari að gera klárt fyrir siglingu en talsvert ísrek var við landið. Vel tókst þó að koma farþegunum um borð og gúmbátnum á flot og fikra sig út á lónið þar sem fjöldi sela var á sveimi. Haldið var á James Bond slóðir þ.e þar sem kvikmyndað var forðum. Þetta var alveg ótrúlegt, aldeilis meiri háttar ferð sagði Ólafur Ragnar þegar hann steig á land og greinilegt var að ekki var Dorrit minna ánægð með siglinguna. Lesa meira
 
Hrollaugsstaðrskóli

Árshátíð Hrollaugsstaðaskóla - 27.04.2006 Apríl

Árshátíð Hrollaugsstaðaskóla verður haldin á Hrollaugsstöðum föstudaginn 28.apríl og hefst klukkan 20:00. Þetta er síðasta árshátíð skólans þar sem ákveðið hefur verið að ekki verði kennsla í Hrollaugsstaðaskóla næsta vetur. Nemendur eru með fjölmörg skemmtiatriði, selja skólablað og síðan eru kaffiveitingar. Allir eru velkomnir að koma og skemmta sér með nemendum og starfsfólki Hrollaugsstaðaskóla. Lesa meira
 
Forsetaheimsókn 26.apríl 2006

Fjölmenn fjölskylduhátíð í íþróttahúsi - 26.04.2006 Apríl

Talið er að nær 600 manns hafi komið saman á fjölskylduhátíðinni sem haldin var til heiðurs forseta Íslands og forsetafrú í íþróttahúsinu á Höfn í gærkveldi. Fjölmargir hornfirskir listamenn komu þar fram og vöktu mikla hrifningu gesta. Forseti Íslands ávarpaði hátíðargesti og þakkaði fyrir góðar móttökur sem þau hjónin hefðu verið aðnjótandi í þessari annarri opinberri heimsókn sinni í Austur-Skaftafellssýslu. Forsetinn kom víða við í ávarpi sínu; ræddi um ægifagra náttúru sýslunnar, góða aðstöðu til að rækta menntun og menningu. Hér væri líka að finna öflug og framsækin fyrirtæki og stofnanir. Hann hvatti til að hlúð yrði vel að uppbyggingu Þórbergsseturs á Hala í Suðursveit til að varðveita minningu Þórbergs Þórðarsonar skálds og nefndi í því samhengi Hús skáldsins að Halldórs Kiljan Laxness Gljúfrasteini og Gunnarsstofu á Skriðuklaustri þar sem varðveitt er minning Gunnars Gunnarssonar skálds. |nl|Forsetinn lagði áherslu á þann mikla auð sem fólk hefði úr að vinna í Austur-Skaftafellssýslu og sagðist öfunda unga fólkið í dag af að takast á við fjölbreytt tækifæri á svo mörgum sviðum. Lesa meira
 
Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu

Tónskólinn með tónleika í Nýheimum - 26.04.2006 Menning

Föstudaginn 28. apríl verða tónleikar í Nýheimum á vegum Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu þar sem lengra komnir nemendur skólans ætla að spila metnaðarfulla dagskrá. Þetta eru seinni tónleikarnir af tveimur en þeir fyrri voru haldnir 2. apríl s.l. Á tónleikunum verður m.a. píanóleikarar, þverflautuleikur, bassaleikur og saxófónleikur. Að lokum spilar léttsveit úr skólanum undir stjórn Gunnlaugs Þrastar ýmsar tónlistarstefnur svo sem swing, jass og dixilandtónlist. Að sögn Jóhanns Morávek skólastjóra tónskólans þá eru um 180 nemendur sem stunda nám við skólann þetta árið og við skólann starfa 10 kennarar. Kennsla hefur farið fram í Sindrabæ, Nesjaskóla, Hrollaugsstöðum og Hofgarði. Tónskóli A-Skaft. hefur staðið að 15 tónleikum á ári auk þess sem nemendur hafa komið víðsvegar fram í bænum. Lesa meira
 
Kosningavefur

Framboðin á Hornafirði opna kosningavef - 25.04.2006 Apríl

Senn líður að kosningum og er mikilvægt fyrir þau framboð sem taka þátt í komandi Sveitarstjórnarkosningum að koma boðskap sínum á framfæri til sem flestra í Sveitarfélaginu. Því hafa Framsóknarfélag Austur-Skaftafellssýslu, Samfylkingin á Hornafirði og Sjálfstæðisflokkurinn á Hornafirði opnað kosningarvef á Hornafjörður.is. Hvert framboð er með sinn eigin vef þar sem þau munu birta upplýsingar um stefnu framboðsins, upplýsingar um frambjóðendur, greina og fréttaskrif og þar geta kjósendur sent fyrirspurn til viðkomandi framboðs. Til að gera efni hvers framboðs enn aðgengilegra þá er sameiginlegt andlit fyrir þau öll á kosningarvef á Hornafjörður.is Á forsíðu kosningarvefsins verða tilvísanir í fréttir og greinar framboðanna, viðburðardagatal, tenglar í kosningartengt efni og helstu dagsetningar tengdar Sveitarstjórnarkosningunum. Lesa meira
 
Hótel Höfn

Eldur og ís á Hótel Höfn fyrir forsetahjónin - 25.04.2006 Apríl

Nú er allt á fullu við að undirbúa hátíðarkvöldverð forseta Íslands sem verður á Hótel Höfn í kvöld kl. 18:30. Boðið verður upp á hornfirska humarveislu í forrétt sem er samsett úr nokkrum glæsilegum humarréttum, í aðalrétt verður að sjálfssögðu boðið upp á hornfirska hreindýrasteik með beikonvöfðum strengjabaunum og confit kartöflum. Í eftirrétt verður "Eldur og ís á Hótel Höfn" en það er réttur sem er einkennandi fyrir þá náttúruperlu sem hér er í ríki Vatnajökuls og verður hluti af því sem hótelið mun bjóða upp á sínum matseðli. Að sögn Óðins Eymundssonar þá er verkefni sem þetta mjög skemmtilegt og kallar fram allt það besta hjá starfsfólki Hótelsins, en það er einnig einkennandi fyrir það góða andrúmsloft sem er í bæjarfélaginu. Lesa meira
 
Forsetaheimsókn 25.apríl 2006

Forsetahjónin hittu yngsta og elsta Hornfirðinginn - 25.04.2006 Apríl

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, forsetafrú komu til Hafnar í morgun. Albert Eymundsson bæjarstjóri, Páll Björnsson sýslumaður og aðrir forsvarsmenn Hornafjarðar tóku á móti forsetahjónunum klukkan níu í morgun eftir að flugvél þeirra lenti á á Hornafjarðarflugvelli. Þaðan var haldið að leikskólunum Lönguhólum og Krakkakoti þar sem leikskólastjórar, leikskólabörn og starfsfólk tóku á móti gestunum. Frá leikskólum lá leiðin í íbúðir aldraðra, Ekruna þar sem forsetahjón kynntu sér aðbúnað aldraðra og hlýddu á Kór aldraðra syngja nokkur lög. Á Hjúkrunarheimilinu á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands hitta forsetahjónin yngsta og elsta Hornfirðinginn, Óskírður sonur Grétars Smára Sigursteinssonar og Gunnhildar Imsland, sem fæddist kl. 22:25 í gærkvöldi og Sólveigu Pálsdóttur frá Svínafelli í Öræfum sem nú er elst Íslendinga, 108 ára gömul. Lesa meira
 
Hofgarður

Skólastjórinn þurfti að keyra að Kotá til að komast í símasamband - 25.04.2006 Apríl

Eftir eldingaverðrið í Öræfum síðustu helgi en þá sló út rafmagni sem olli því að veituspenna fór á símabúnaðinum á Háöxl og urðu því margir bæir í Öræfum símasambandslausir. Samkvæmt upplýsingum frá Evu Magnúsdóttur upplýsingafulltrúa Símans þá bárust viðvaranir um bilunina Kerfisvöktun klukkan 18:40 á sunnudagskvöld og strax á mánudagsmorgun fóru tæknimenn Símans frá Reykjavík austur. Við skoðun á búnaði kom,í ljós að bilanirnar voru víðtækari en búist var við og tímafrekt að gera við það sem bilaði. Vinnu lauk og farsímasamband komst aftur á um klukkan 23:30 í gærkvöldi en þar sem sækja þurfti varahluti til Reykjavíkur vegna bilunar á búnaði sem flytur samböndin á Hofgarði sem einnig skemmdist í eldingaveðrinu komst símasamband ekki á Hofsbæina fyrr en um hádegisbilið í dag. Lesa meira
 
Einar Björn EInarsson

Allt á fullu við undirbúning fyrir sumarið - 24.04.2006 Apríl

Þessa dagana er allt á fullu við undirbúning fyrir sumarið segir Einar Björn Einarsson staðarhaldari á Jökulsárlóni. Hjólabátarnir að verða klárir eftir yfirhalningu sem fram fer yfir vetrartímann, en bátarnir eru allir teknir upp og fluttir út í Ósland þar sem Einar Björn er með aðstöðu. Við flytjum bátana svo og annan búnað sem notaður er á lóninu í byrjun maí því fyrstu túrarnir út á lónið hefjast um miðjan maí. Þessa dagana er verið að auglýsa eftir fólki til starfa á lóninu og geta áhugasamir nálgast upplýsingar á atvinnusíðunni hér á vefnum. Jökulsárlón er mjög vinsæll vinnustaður enda hefur Einar Björn verið duglegur við að gera vel fyrir sitt starfsfólk, m.a. hefur boðið því erlendis eftir sumartörnina. Lesa meira
 
Forsetahjónin á svölum Alþingishússins

Dagskrá forsetaheimsóknar í næstu viku - 21.04.2006 Apríl

Eins og áður hefur komið fram hér á vefnum þá kemur forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú í opinbera heimsókn til Austur-Skaftafellssýslu í næstu viku. Búið er að skipuleggja dagskrá heimsókninarinnar sem hefst að morgni þriðjudagsins 25. apríl og lýkur að kvöldi miðvikudagsins 26. apríl. Albert Eymundsson bæjarstjóri, Páll Björnsson sýslumaður og aðrir forsvarsmenn Hornafjarðar taka á móti forsetahjónunum klukkan níu á þriðjudagsmorgni á Hornafjarðarflugvelli. Þaðan verður haldið að leikskólunum Lönguhólum og Krakkakoti þar sem leikskólastjórar, leikskólabörn og starfsfólk kynna skólana. Frá leikskólum liggur leiðin í Ekruna, íbúðir aldraðra á Höfn og miðstöð félagsstarfs þeirra en þar munu forsetahjón kynna sér aðbúnað aldraðra og hlýða á Kór aldraðra syngja nokkur lög. Á Hjúkrunarheimilinu á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands hitta forsetahjónin Sólveigu Pálsdóttur frá Svínafelli í Öræfum sem nú er elst Íslendinga, 108 ára gömul. Lesa meira
 
Gauti Árnason

Ráðinn í stöðu matráðs í eldhúsi HSSA - 21.04.2006 Apríl

Tveir sóttu um stöðu matráðs í eldhúsi Heilsugæslustöðvar Suðausturlands og var Hornfirðingurinn Gauti Árnason matreiðslumaður ráðinn í starfið. Gauti er giftur Ragnheiði Rafnsdóttir, Breiðdælingi, og eiga þau 4 börn. Gauti nam sitt fag á Hótel Höfn og lauk sveinsprófi í matreiðslu frá Hótel og veitingaskóla Íslands í janúar 1997. Síðan hefur hann unnið við sitt fag á hinum ýmsu stöðum, m.a. á veitingastöðunum Einari Ben og Hótel Loftleiðum. Í tvö ár var hann kjötmeistari í Nóatúnsbúðum en fór síðan í eigin rekstur með Árna Stefáni bróður sínum. Þar voru þeir bræður að afgreiða mat í fyrirtæki, fyrir eldriborgara og í grunnskóla. Einnig ráku þeir veislueldhús í Glæsibæ. Eftir að 5 ára rekstri lauk flutti fjölskyldan aftur á Höfn og hefur Gauti starfað sem rekstrarstjóri eldhúss hjá Fosskraft sf, og stjórnað þar 200 manna mötuneyti, en Fosskraft sf er að byggja stöðvarhúsið í Fljótsdal fyrir Kárahnjúkavirkjun. Lesa meira
 
Aðalbjörn Úlfarsson

"Oft ganga pestir af ýmsu tagi" - 19.04.2006 Apríl

Aðalbjörn Úlfarsson á Dvalarheimilinu á Höfn afhent Heilsugæslustöðinni í dag 200 þúsund kr. gjöf í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaðinum. Aðalbjörn dvelur á Dvalarheimilinu Skjólgarði sem nú er flutt í nýtt húsnæði á Víkurbraut 26. Guðrún Júlía Jónsdóttir hjúkrunarforstjóri sagði að nú væru endar alveg að nást saman í söfnuninni, þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel og með þessari góðu samstöðu tekst að búa heilsugæslustöðina okkar þessum nauðsynlega búnaði. Gengið verður frá pöntun tækjanna á föstudaginn. Lesa meira
 
Í sláturhúsinu 19.september

Sveitarfélagið vill selja fimmtán og hálft ærgildi - 19.04.2006 Apríl

Á bæjarstjórnarfundi nýlega kom fram að Sveitarfélagið Hornafjörður á fimmtán og hálft ærgildi og einnig að þau væru til sölu. Helst af öllu vill bæjarstjórn selja þau innan héraðsins, en rétt er að taka það fram að þessi ærgildi eru aðeins á pappírum en ekki í lifandi fé. Ærgildin eignaðist bærinn með jörðinni Hafnarnesi fyrir allmörgum árum. Grétar Þorkelsson hjá Búnaðarsambandi Suðurlands segir að kaupverð á hvert ærgildi sé um það bil 20-30 þúsund kr. Hverju ærgildi sem er í framleiðslu fylgir framleiðsluréttur fyrir 18.2 kg af kjöti með beingreiðslu frá ríkinu. Grétar segir að helst sé eitthvað um að bændur sem eru aðeins að bæta við fjárstofn sinn kaupi nokkur ærgildi í einu en þetta þyki dýr fjárfesting og lengi að borga sig upp. Lesa meira
 
Ragnhildur, Steinunn og Gudru Júlia

Enn bætist við í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaðinum - 18.04.2006 Apríl

Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja í Hvammi í Lóni kom á Heilsugæslustöðina á Höfn í dag og afhenti gjafabréf upp á kr. 500 þúsund í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaðinum. Guðrún Júlía Jónsdóttir hjúkrunarforstjóri og Ragnhildur Magnúsdóttir héraðslæknir þökkuðu þessa höfðinglegu gjöf. Einnig hafa borist í söfnunina kr. 200 þús. frá Krabbameinsfélagi Suðausturlands, 250 þúsund frá einstaklingi, sem ekki vill láta nafn síns getið og systkini Gunnhildar Gunnarsdóttur færðu heilsugæslunni gjöf í minningu hennar. Þetta hefur gengið alveg frábærlega og núna í vikulokin verður gengið frá pöntun á myndavélinni og þeim búnaði sem henni tilheyrir og á hún að vera komin í notkun um mánaðarmót maí–júní sagði Guðrún Júlía. Lesa meira
 
Öræfaferðir 200

200 sinnum á toppi Hvannadalshnúks - 15.04.2006 Apríl

Það var stór stund hjá Einari E. Sigurðssyni leiðsögumanni Öræfaferða sl. mánudag þegar hann stóð í tvö hundraðasta sinni á toppi Hvannadalshnúks, í einstakri veðurblíðu. Þegar vefurinn hafði samband við Einar í vikunni var hann að koma úr ferð á Svínafellsjökul, það var bara svona smá skreppur sagði hann og þegar hann var spurður um hvernig honum hefði verið innan brjósts þegar hann stóð á toppnum í ferð nr.200 var svarið; ég var bara rosalega þakklátur skaparanum fyrir að gefa mér þetta allt, útsýnið var einstakt og birtan svo falleg, skýjahulan hafði hreinsast burt svo himininn var heiður og blár og við sáum út um allt. Svo bætti nú skaparinn um betur í tilefni dagsins ( ég veit að hann stjórnar þessu öllu) og gaf okkur það besta skíðafæri, sem ég hef fengið, alla leiðina niður svo að frá gígnum vorum við aðeins um hálfa klst niður. Mér leið svipað þegar ég stóð á toppnum í minni fyrstu formlegu leiðsöguferð um Hvítasunnuna 1994. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn

Bæjarbúar, tökum saman höndum við árlega vorhreinsun! - 14.04.2006 Apríl

Í tilefni af opinberri heimsókn Forseta Íslands þann 25. - 26. apríl n.k. og vegna ábendinga frá íbúum sveitarfélagsins, vill tækni og umhverfissviði Hornfjarðar óska eftir því við forstöðu- og umsjónarmenn opinberra stofnanna, sem og bæjarbúa alla, að taka saman höndum og gera vorhreingerningu á lóðum sínum, runnum, beðum og nánasta umhverfi í fyrrafalli þetta vorið. Mikið hefur borið á rusli í bænum og þá aðallega að það safnast saman í runnum og beðum okkur til ósóma. Félagasamtök hafa þegar gert átak á vegum sveitarfélagsins á opnum svæðum en víða er ábótavant við lóðir fyrirtækja, verslana, stofnana og íbúðarhúsa. Einnig er mikið um bílhræ í bænum og viljum við benda á að móttaka bílhræja er á gámastöð og hægt er að fá greitt fyrir bílhræin hjá sýslumanni. Lesa meira
 
Málverk Steinn Sigurðsson

Steinn Sigurðsson með málverkasýningu í Pakkhúsinu - 13.04.2006 Apríl

Meðal listviðburða á Höfn í páskavikunni er málverkasýning Steins Sigurðssonar sem verður opnuð í Pakkhúsinu á skírdag kl.17. Þetta er 7. einkasýning Steins og er þema sýningarinnar blóm í náttúrunni. Myndirnar eru málaðar með akrýl á striga. Steinn sem er 35 ára, lærði myndlist í fjölbrautarskólanum í Breiðholti og lauk námi þar 1991. Steinn hefur m.a. sýnt verk sín í Gallery 17. Ég er tengdur Hornafirði sagði Steinn, þar sem að konan mín er þaðan (Valgerður Sigurðardóttir og eigum við soninn Sigurð) og síðan ég kom fyrst á Höfn hefur mig langað til þess að vera með sýningu þar,enda óskaplega fallegur bær." Lesa meira
 
Öræfajökull

Kvískerjasjóður úthlutar styrkjum - 12.04.2006 Apríl

Kvískerjasjóður, sem stofnaður var af Umhverfisráðuneytinu, til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum, úthlutar nú styrkjum í þriðja sinn. Hlutverk hans er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknastyrkja til einstaklinga og stofnana. Sjóðurinn hefur ýtt mjög undir auknar rannsóknir á svæðinu og þannig náð megintilgangi sínum að viðhalda því merka rannsókna- og vísindastarfi sem Kvískerjaheimilið er þekkt fyrir. Stjórn sjóðsins ákvað að veita liðlega þrem milljónum króna í styrki að þessu sinni. Níu umsóknir bárust og ákveðið var að styrkja sjö verkefni að þessu sinni. Lesa meira
 
Vestragil, Gamla rafstöðin í Skaftafelli

Hugmyndasamkeppni um ''afurðir þjóðgarðsins'' - 11.04.2006 Apríl

Nú fer hver að verða síðastur að senda inn vöru eða þjónustuhugmynd í samkeppnina um "afurðir þjóðgarðsins". Efni í hugmyndasamkeppnina þarf að senda fyrir 15. apríl næstkomandi merkt: "Samkeppni – Þjóðgarðsafurð" á annaðhvort eftirfarandi heimilisfanga: Frumkvöðlasetrið á Hornafirði, Nýheimum, Litlubrú 2, 780 Höfn eða Kirkjubæjarstofa, Klausturvegi 2, 880 Kirkjubæjarstofa. Innsenda tillögu þarf að merkja með dulnefni en heiti höfundar þarf að fylgja í lokuðu umslagi merkt sama dulnefni. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir fyrstu þrjú sætin í keppninni. 1. verðlaun eru 2500 evrur sem Koli þjóðgarðurinn í Finnlandi, sem tekur þátt í NEST verkefninu veitir í hverju þátttökulandi. 2. verðlaun eru 80.000 kr. og í 3. verðlaun eru 40.000 kr. Lesa meira
 
Hvítasunnusöfnuðurinn

Söngur og lofgjörð á nokkrum stöðum í sveitarfélaginu - 11.04.2006 Apríl

Það var mikið um að vera hjá Hvítasunnusöfnuðinum á Hornafirði um síðustu helgi sem var með söng og lofgjörð á nokkrum stöðum í sveitarfélaginu. Um kl.15.00 komu leiðtogar Hvítasunnusafnaðarins á Hornafirði þau Matthildur Þorsteinsdóttir og Einar R. Sigurðsson ásamt lofgjörðarhóp frá Hvítasunnukirkjunni í Vestmannaeyjum í Miðbæ og sungu og spiluðu fyrir fjölda áheyrenda. Þetta var yndislegt sagði Matthildur, við nutum þess að hitta fullt af fólki þarna og vonum að það hafi líka notið þess að hlusta á okkur. Við erum búin að syngja með lofgjörðarhópnum alla helgina, fórum á dvalarheimilið og sungum fyrir fólkið þar, vorum með tvær samkomur í kirkjunni okkar á Hafnarbraut 59 og sú síðasta var á sunnudagskvöldið í Hofgarði. Lesa meira
 
Skóflustunga að sundlaug

Fyrsta skóflustunga tekin fyrir nýrri sundlaug - 11.04.2006 Apríl

Framkvæmdir hófust í morgun með fyrstu skóflustungu fyrir nýju sundlauginni sem byggð verður við Íþróttahúsið. Halldóra B. Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar, Elín Magnúsdóttir formaður bæjarráðs ásamt þeim Reyni Arnarssyni og Birni Emil Traustasyni bæjarfulltrúum voru viðstödd. Það var Friðrik Ingvaldsson formanni bygginganefndar sundalaugar sem settist upp í gröfuna og tók fyrstu skóflustunguna. Albert Eymundsson bæjarstjóri var staddur í Reykjavík. Nú verður skipt um jarðveg og settur burðarlagspúði og farg ofan á púðann til þess að láta svæðið síga. Síðan verður fylgst með siginu og þegar það er orðið lítið hefjast framkvæmdir við mannvirkið sjálft sem er reiknað með að verði n.k. júlí. Lesa meira
 

Skinney- Þinganes býður starfsfólki í Evrópuferð - 11.04.2006 Apríl

Í tilefni 60 ára starfsafmælis útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Skinneyjar-Þinganess hf. hefur stjórn félagsins ákveðið að bjóða starfsfólki fyrirtækisins í helgarferð til einhverrar borgar í Evrópu í haust. Þó svo að félagið hafi orðið til í núverandi mynd árið 1999 eru ræturnar dýpri. Borgey var stofnuð 11. apríl árið 1946, Skinney í maí 1968 og Þinganes 20. maí 1972. Félögin voru sameinuð undir kennitölu elsta fyrirtækisins og er miðað við stofnár þess sem stofnár félagsins. Hjá fyrirtækinu vinna í dag um 170 manns og gerð eru út 8 skip. Lesa meira
 
Jón Sölvi

Nýr meistarakokkur á Hótel Höfn - 10.04.2006 Apríl

Jón Sölvi Ólafsson hefur verið ráðinn sem yfirmatreiðslumeistari á Hótel Höfn. Jón Sölvi er lærður matreiðslumaður frá Hótel og veitingaskóla Íslands. Hann hefur starfað sem matreiðslumaður síðan 1992, hér á Íslandi sem erlendis. Meðal þeirra veitingastaða sem hann hefur starfað á hér á landi eru Hótel Óðinsvé, Perlan, Hótel Kirkjubæjarklaustur og Hótel Framtíð á Djúpavogi. Hann hefur leitast við að afla sér reynslu og þekkingar á heilsufæði og erlendri matargerð. Meðal vinnustaða hans á erlendri grundu eru Le Chesnay í Frakklandi, Kurhotel Palace í Austurríki og Golf Hotel Viborg í Danmörku. Að sögn Óðinns Eymundssonar þá er hann mjög góð viðbót við þá kokka sem starfa á hótelinu og er það bara til að auka breiddina. Hans sérþekking liggur m.a. í heilsufæðis réttum sem eru sífellt að verða vinsælli. Lesa meira
 
Halldora_B_Jonsdottir

Halldóra Bergljót mun leiða lista sjálfstæðismanna - 09.04.2006 Apríl

Talningu í Prófkjöri sjálfstæðismanna lauk um fimm leitið í morgun og eru úrslitin ljós. Halldóra Bergljót Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar mun leiða lista sjálfstæðismanna í sveitarfélaginu. Hún hlaut samtals 222 atkvæði í fyrsta sæti, Björn Ingi Jónsson í öðru sæti með 249, Albert Eymundsson bæjarstjóri sem keppti við Halldóru Bergljótu um fyrsta sætið lenti í þriðja sæti með 187 atkvæði, Björk Pálsdóttir hafnaði í fjórða með 210 atkvæði og Halldóra Guðmundsdóttir í því sjötta með 274 atkvæði. Samtals voru 424 sem kusu í prófkjörinu. Björn Emil Traustason bæjarfulltrúi sem keppti við Björn Inga um annað sæti er ekki einn að sex efstu. Lesa meira
 
Kjörstaður prófkjörs

Fyrstu tölur birtar á Skjávarpi - 08.04.2006 Apríl

Í dag fer fram prófkjör sjálfstæðismanna í Sveitarfélaginu Hornafirði. Prófkjörið er haldið á Kaffi Horninu, Hofgarði Öræfum, Hrollaugsstöðum í Suðursveit, Holti á Mýrum, Fundarhúsinu í Lóni og Mánagarði í Nesjum og byrjaði víða kl. 11 í morgun. Að sögn Magnúsar Jónassonar í kjörstjórn þá hefur þátttakan verið mjög góð. Í kjörstjórn eru auk Magnúsar, Vignir Júlíusson og Snorri Aðalsteinsson. Fyrstu tölur verða birtar á SkjáVarpi og hér á vefnum kl.23:10 en síðasti kjörstaður lokar kl. 20. Strax eftir lokun kjörstaðar munu sex manns hefja talningu og þegar búið er að telja 100 atkvæði verða fyrstu tölur birtar. Búist er við að talningu verði lokið fyrir miðnætti í kvöld. Mikil stemning hefur verið í kringum prófkjörið og hafa frambjóðendur verið mjög áberandi undanfarið. Lesa meira
 
Gönguferð upp í Almannaskarð

Gengið meðfram Rauðabergsfjalli á Mýrum - 07.04.2006 Apríl

Fimmtudaginn 30. mars fór Ferðafélagið í gönguferð upp í Almannaskarð. Lagt var upp frá tjaldstæðinu um sexleytið síðdegis í lögreglufylgd, því hugmyndin var jú að ganga í gegnum göngin, en það er ekki leyfilegt nema í fylgd lögreglu. Hópurinn alls 16 manns, var á öllum aldri allt frá fjögra ára til sextugs. Það gustaði aðeins um okkur í upphafi en það var náttúrlega ágætis logn inni í göngunum. Upp Skarðsdalinn var aðeins á fótinn, en þegar upp kom blasti auðvitað Hornafjörður við í allri sinni dýrð baðaður í kvöldsólinni. Við fundum skjólsælan stað til að borða nestið okkar og viti menn, finnast þá ekki pönnukökur upprúllaðar með sykri þar undir steini, sem einn fyrirhyggjusamur ferðafélaginn hafði komið þar fyrir. Það var sko aldeilis frábært að sitja þarna efst í Almannaskarði borða pönnsur og hlusta á fróðleik sem ferðanefndin hafði tekið saman um samgöngur um Almannaskarð fyrr og nú. Lesa meira
 
Tengslanet austfirskra kvenna

Tengslanet austfirskra kvenna opnar heimasíðu - 07.04.2006 Apríl

Heimasíða T.A.K., www.tengslanet.is, verður opnuð formlega laugardaginn 8. apríl kl. 15:00. Samhliða verða kynningarfundir með aðstoð fjarfundabúnaðar á sex stöðum á Austurlandi, einn af þeim stöðum eru Nýheimar. Þar munu Elín S. Harðardóttir og Rannveig Einarsdóttir kynna sprotafyrirtækið Náttúrulega ehf. Á vefnum verða m.a. upplýsingar um félagið og það sem er á döfinni, kynningu á félagskonum og vefumræðum þeirra á milli. Að auki ýmiss fróðleikur sem nýst getur félagskonum. Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru ný samtök kvenna á Austurlandi og er hlutverk þeirra er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti tengslanetsins er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Lesa meira
 
Rokk í 50 ár

Aðalfundur Hornfirska skemmtifélagsins - 04.04.2006 Apríl

Hornfirska skemmtifélagið heldur aðalfund sinn miðvikudaginn 5. apríl kl. 20:30 í bíósalnum í Sindrabæ (ath breyttan fundarstað). Spennandi verkefni eru framundan hjá félaginu en áformað er að setja upp tónlistardagskrá í haust eins og undanfarin ár og einnig er undirbúningur fyrir Norðurljósablús 2007 þegar hafinn. Það er því nóg pláss fyrir áhugasamt fólk í Hornfirska skemmtifélaginu og eru allir velkomnir á aðalfundinn. Nánari upplýsingar um dagskrá fundarins eru á vef félagsins skemmtifelag.is. Hornfirska Skemmtifélagið hefur ekki setið auðum höndum frá stofnun þess. Fyrsta verkefni félagsins var sýningin "Slappaðu af!" sem var frumsýnd á Hótel Höfn október 2002 og var sýnd þar nokkrum sinnum við góðar undirtektir. Annað verkefnið nefndist "Með allt á hreinu" og var einnig sýnt á Hótel Höfn í október 2003. Þar voru lögin og húmorinn úr Stuðmannamyndinni góðkunnu tekin fyrir. Sýningin sló rækilega í gegn og á þriðja hundrað manns hvaðanæva af landinu lögðu leið sína til Hornafjarðar til að sjá sýninguna. Lesa meira
 
Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)

Fengu verðlaun fyrir athyglisverðasta og besta básinn á Ferðatorgi 2006 - 02.04.2006 Apríl

Í gærkvöldi afhentu Pétur Rafnsson formaður Ferðamálasamtaka Íslands og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra Ferðamálasamtökum Austurlands verðlaun fyrir athyglisverðasta og besta básinn á ferðatorgi 2006. Unnur Sveinsdóttir frá Stöðvarfirði hannaði básinn. Verðlaunaafhendingin fór fram á Hótel Sögu þar sem saman voru komin um 400 manns sem eru þátttakendur í Ferðatorgi 2006 og Matur 2006. Meðal þeirra voru var stór hluti erlendra gesta. Fyrir hönd Ferðamálafélags A-Skaft. voru það Guðrún Jónsdóttir og Guðbrandur Jóhannesson sem kynntu ferðaþjónustu í Hornafirði á Ferðatorgi 2006. Lesa meira
 
Reiðhjólasala

Ný reiðhjól til sölu á 2000 kr. í Hornabæ - 01.04.2006 Apríl

Í dag frá kl. 13:00 verða reiðhjól til sölu í Hornabæ á 2000 þúsund krónur en það er Ludwig H. Gunnarsson (Lúlli) sem stendur fyrir sölunni. Um er að ræða innflutt reiðhjól sem Lúlla áskotnaðist á uppboði hjá Lögreglunni í Kaupmannahöfn sem hann sótti í byrjun mars. " Ég átti mjög erfitt með að trúa að ég hefði fengið pakkann, var staddur í Kaupmannahöfn í helgarferð með henni Gunnu minni þegar við rákumst á þetta uppboð lögreglunnar, bauð hlægilega lága upphæð sem ég vil ekki gefa upp en viti menn, fékk pakkann fyrir slikk. Að sögn Lúlla þá gekk allt upp með að fá þau flutt hingað til Hafnar. Sökum þess að hjólin eru keypt á uppboði þá flokkast þau undir notuð reiðhjól og er ekki tollur af þeim við flutning hingað til lands. Fyrir vikið er hægt að bjóða þau á mjög góðu verði segir Lúlli og er stefnan að losna við þau á nokkrum dögum enda stutt í sumarið. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica