Mars
Árshátíð undirbúningur
Árshátíð undirbúningur
Árshátíð undirbúningur
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

30.03.2006 Mars

Ýmsar sögupersónur á ferðinni í Hafnarskóla

Í Hafnaskóla eru ýmsar sögupersónur á ferðinni þessa dagana. Þar eru Lína Langsokkur, Emil í Kattholti, Kalli á þakinu, Ronja Ræningjadóttir, ásamt óteljandi fleiri sögupersónum úr bókum Astridar Lindgren. Ástæðan er sú að í kvöld verður árshátíð skólans sem að þessu sinni er þannig upp byggð að foreldrum og öðrum aðstandendum er boðið á leiksýningu í Sindrabæ. Tvær sýningar verða í kvöld, sú fyrri kl. 17:00 en sú síðari kl. 19:00. Aðstandendum 4. og 5. bekkjar er beint á fyrri sýninguna en 6. og 7. bekkjar á þá síðari. Nemendur og starfsfólk hafa lagt mikinn metnað í þessa sýningu og á morgun verður nemendum Nesjaskóla og Krakkakots boðið á sýningar. Aðgangseyrir er í hófi 500 kr á mann og aldrei meira en 1000 kr á fjölskyldu. Veitingasala verður í Sindrabæ fyrir sýningu þar sem boðið er upp á safa og smákökur, bakaðar af nemendum. Hér koma nokkrar myndir af leikendum en sviðið verður leyndarmál fram yfir frumsýningu.

Í vikunni hafa nemendur í 4. og 5. bekk líka verið í danskennslu hjá Jóni Pétri danskennara og á morgun kl. 13:00 verður foreldrasýning í Íþróttahúsinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica