Framsóknarmenn í Hornafirði samþykkja lista
Á fjölmennum fundi sem haldinn var í Framsóknarfélagi Austur-Skaftfellinga, miðvikudaginn 29. mars var samþykktur framboðslisti félagsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Oddviti listans er Reynir Arnarson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi. Í öðrusæti er Elín Magnúsdóttir fótaaðgerðafræðingur og formaður bæjarráðs, í þriðja sæti er Sigurlaug Gissurardóttir, ferðaþjónustubóndi og í fjórða sæti er Ásgrímur Ingólfsson, skipstjóri. Almenn ánægja kom fram á fundinum með listann og er mikill hugur í framsóknarmönnum og stuðningmönnum þeirra fyrir komandi kosningar.
Listi framsóknarmanna og stuðningmanna þeirra er eftirfarandi:
1. Reynir Arnarson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
2. Elín Magnúsdóttir, fótaaðgerðafræðingur og form. bæjarráðs
3. Sigurlaug Gissurardóttir, ferðaþjónustubóndi
4. Ásgrímur Ingólfsson, skipstjóri
5. Lilja Hrund Harðardóttir, nuddari
6. Gunnar Sigurjónsson, bóndi
7. Gunnar Ingi Valgeirsson, öryggisvörður
8. Gunnar Páll Halldórsson, verkstjóri
9. Þorsteinn Guðmundsson, skipstjóri
10. Aðalheiður Fanney Björnsdóttir, leiðbeinandi
11. Svala Bryndís Hjaltadóttir, skrifstofumaður
12. Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir, bankafulltrúi
13. Friðrik Ingvaldsson, netagerðarmeistari
14. Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi




Skrifa athugasemd