Mars
Framsókn
Framsókn
Höfn og jöklasýn (úr myndasafni)

29.03.2006 Mars

Framsóknarmenn leggja fram lista

Fréttatilkynning frá Framsóknarfélagi Austur-Skaftfellinga

Framsóknarfélag Austur-Skaftfellinga boðar til fundar í kvöld, miðvikudaginn 29.mars kl. 20:00 í Kaupfélagshúsinu, Hafnarbraut 2. Á fundinum verða lagðar fram tillögur uppstillinganefndar að framboðslista framsóknarmanna og stuðningmanna þeirra fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 27. maí n.k. Vel hefur gengið að fá fólk til að taka sæti á listanum og er greinilegt að mikill hugur er í frambjóðendum, enda leggja framsóknarmenn og stuðningmenn þeirra störf síðustu fjögurra ára óhræddir í dóm kjósenda.

Við viljum minna á að kosningaskrifstofan, sem er í Kaupfélagshúsinu, Hafnarbraut 2, er opinn á laugardagsmorgnum kl.10-12. Er til fullkomnari leið til að ganga inn í helgina en að kíkja í morgunkaffi framsóknarmanna og stuðningmanna þeirra!

Stjórn Framsóknarfélags Austur-Skaftfellinga

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica