Kynna svæðið á Ferðatorgi 2006
Dagana 31.mars til 2.apríl verður sýningin Ferðatorg 2006. Þar kynna öll átta ferðamálasamtök landshlutanna sinn landshluta, sitt svæði og þá þjónustu sem þar er í boði. Kynningu á ferðaþjónustu í Hornafirði og öllu sem henni tilheyrir munu þau Guðrún Jónsdóttir og Guðbrandur Jóhannsson sjá um. Við verðum með sameiginlegan sýninga- og kynningabás með Ferðamálasamtökum Austurlands sagði Guðrún og erum á fullu að undirbúa þetta. Þetta er allt nýtt fyrir mér en Guðbrandur er þaulvanur þessu öllu. Sýningin byrjar á föstudaginn og er eingöngu fyrir ferðaheildsala þann dag en á laugardag og sunnudag verður hún öllum opin. Ferðatorgið er að þessu sinni tengt sýningunni Matur 2006 sem er mjög áhugaverð sýning. Búist er við mikilli aðsókn á sýningarnar.
Með því að tengja sýninguna við Matur 2006 gefst sýnendum á Ferðatorgi einnig tækifæri til að kynna sig fyrir þeim erlendu aðilum sem heimsækja Matur 2006. Búist er við yfir 400 erlendum gestum á Matur 2006 í tengslum við keppnir á vegum Matvís s.s. kokkum, dómurum og blaðamönnum.
Sýningin er í Fífunni í Kópavogi.





Skrifa athugasemd