Leggja afrakstur uppstillingarnefndar fyrir félagsmenn
Fréttatilkynning frá Samfylkingunni á Hornafirði
Félagsfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði verður haldinn á Kaffi Horninu kl. 20:00 fimmtudaginn 30. mars. Efni fundarins verður að leggja fram framboðslista Samfylkingarinnar á Hornafirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 27. maí. Vösk sveit fólks hefur unnið að því undanfarna daga og vikur að stilla upp öflugum lista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Nú er komið að því að leggja afrakstur uppstillingarnefndar fyrir félagsmenn.
Rætt hefur verið við fjölda fólks í sveitarfélaginu og hafa viðbrögðin verið ótrúlega jákvæð. Við jafnaðarmenn finnum fyrir mjög jákvæðum straumum í samfélaginu fyrir okkar framboði og greinilegt er að fólk vill sjá öflugt framboð sem grundvallast á hugsjónum hinnar klassísku jafnaðarstefnu.Samfylkingunni er best treystandi af öllum til þess að framfylgja þeim hugsjónum. Á grundvelli þessara hugsjóna mun Samfylkingin starfa í sveitarstjórn á Hornafirði.
Mikill hugur er í Samfylkingarfólki fyrir kosningarnar og nú þegar öflugur framboðslisti er að fæðast mun enn meiri kraftur færast í starf félagsins sem þó er kraftmikið fyrir. Það er orðið löngu tímabært að félagshyggju- og jafnaðarfólk eignaðist kraftmikinn og trúverðugan pólitískan málsvara á Hornafirði. Sá öflugi málsvari er Samfylkingin og nú mun hún láta að sér kveða í bæjarmálunum.
Stjórn Samfylkingarinnar á Hornafirði





Skrifa athugasemd