Nýta hluta morgunkaffitímans til gönguferðar í Óslandinu
Allt fyrir heilsuna og hreystina sagði starfsfólkið í fiskvinnslunni Bestfiski sem nýtir hluta morgunkaffitímans til að gönguferðar í Óslandinu. Margir vinnustaðir eru með heilsuátak fyrir starfsfólk sitt og þykir sýna góðan árangur. Við erum að byrja á þessu og vonandi koma sem flestir af starfsliðinu með okkur sagði Sívar Árni Scheving einn eiganda og framkvæmdastjóri Bestfisks. Þetta er hörkuduglegt starfsfólk sem hér er og ég vona að sem flestir verði með í Óslandsgöngunni okkar, það er bara að drífa sig á stað og finna hvað þetta er hressandi.
Hjá Bestfiski vinna 12 til 15 manns og hefur verið mikið að gera í fiskvinnslunni undanfarið og því veitir ekki af að hlaða batterýin vel.





Skrifa athugasemd