Þrír aðilar buðu í dýpkun hafnarinnar
Búið er að opna og fara yfir þau tilboð sem bárust í dýpkun innan hafnar í Hornafjarðarhöfn. Þrír aðilar buðu í verkið. Lægstir voru Gáma og tækjaleiga Austurlands, Reyðarfirði en þeir hafa verið að dýpka á grynnslunum undanfarið, Þeir buðu kr. 41.900.000,- Hornfirsku fyrirtækin Vélsmiðjan Foss og Rósaberg buðu saman kr. 68.860.000,- og gerðu auk þess frávikstilboð að upphæð kr. 94.720.000,- sem fólst í því að meiru magni að efni yrði dælt eða 190.000 rúmmetrum í stað 120.000 rúmmetra. Björgun í Reykjavík sem einnig eins og Gáma og tækjaleiga Austurlands hefur dælt upp úr grynnslunum buðu kr. 72.165.000,- og gerður þeir einnig frávikstilboð að upphæð kr. 58.065.000,- sem fólst í því að þeirra dæluskip gæti notað þær lagnir sem Soffía hefur notað til þessa.
Búið er að fara yfir tilboðin og reyndust þau öll rétt reiknuð. Allar líkur eru á að rætt verði við lægstbjóðanda um verkið.





Skrifa athugasemd