Mars
Pæjur og pólitískt plott
Pæjur og pólitískt plott
Margrét Frímansdóttir á fundi Samfylkingarinnar á Hornafirði "Pæjur og pólitískt plott" sem haldinn var fyrr í þessum mánuði á Kaffihorninu (úr myndasafni @Árni].

25.03.2006 Mars

Greinilegt að hugur er í fólki fyrir væntanlegar kosningar

Fréttatilkynning frá Samfylkingunni á Hornafirði

Fimmtudaginn 23. mars síðastliðinn var að aðalfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði haldinn í húsi Vökuls. Á fundinum voru venjuleg aðalfundarstörf á dagskrá auk umræðna um sveitarstjórnarkosningar 27. maí nk. Mikil og góð mæting var á fundinn og greinilegt að hugur er í fólki fyrir væntanlegar kosningar. Á fundinum var stjórnin endurkjörin en í henni sitja; Árni Rúnar Þorvaldsson, formaður, Hjördís Þórs Sigurþórsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Guðrún Ingimundardóttir og Ingvar Þórðarson. Formaður gerði grein fyrir vinnu uppstillingarnefndar og greindi frá því að framboðslisti Samfylkingarinnar til sveitarstjórnar yrði kynntur félagsmönnum fimmtudaginn 30. mars á almennum félagsfundi.

Í máli formanns kom einnig fram að stjórnin hefði útvegað kosningaskrifstofu á besta stað í bænum og til stæði að opna hana fyrsta laugardag eftir páska.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica