Mars
Lóan er komin
Lóan er komin til landsins. Tvær heiðlóur sáust kl.8.45 í morgun utan við Ósland á Höfn í Hornafirði. Brynjúlfur Brynjólfsson fuglaathugunarmaður segir að þetta sé venjulegur tími að sjá fyrstu lóurnar og undanfarin átta ár hafi komutími hennar verið á tímabilinu 20.-31. mars og fjórum sinnum hafi fyrstu lóurnar sést 24.mars. Varla er hægt að vænta meiri nákvæmni. Það er óneytanlega notalegt að heyra og sjá lóurnar aftur og þær hafa góð áhrif á þá sem finnst veturinn langur því flestum finnst vorið koma með farfuglunum.
Nánari fréttir af farfuglum eru að finna á www.fuglar.is





Skrifa athugasemd