Mars
Waterfire
Waterfire
Þjóðgarðurinn – alltaf jafn glæsilegur (mynd FAS)
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

24.03.2006 Mars

Ísland - Ungverjaland

Eins og eflaust margir muna eftir fór hópur nemenda úr FAS ásamt tveimur kennurum til Ungverjalands um miðjan október. Þessi ferð var liður í nemendaskiptaverkefni á vegum Evrópusambandsins. Sú ferð var einstaklega vel lukkuð og lærdómsrík. Laugardaginn 18. febrúar síðast liðinn var svo komið að því að Ungverjarnir kæmu til Íslands og dveldu hér í hálfan mánuð. Félagarnir úr FAS fóru áleiðis til að taka á móti hópnum og má með sanni segja að það hafi orðið fagnaðarfundir þegar hóparnir hittust. Voru gestirnir vart komnir út úr flugvélinni þegar þeim var dembt í Bláa lónið. Á sunnudeginum var svo haldið austur á bóginn og m.a. höfð viðkoma í gróðurhúsum í Hveragerði, við Skógafoss, í Dyrhólaey, í Skaftafelli og við Jökulsárlón. Það er óhætt að segja að landið hafði tekið vel á móti gestunum því á leiðinni austur var sól og blíða. Ungverjarnir dvöldu í 12 daga hér eystra og bjuggu inni á heimilum íslenskra félaga sinna. Með því móti kynntust þeir landi og þjóð á allt annan hátt en ef þeir hefðu komið sem venjulegir ferðamenn. Það var nóg að gera þá daga sem var staldrað við hér eystra.

Heimsókn þeirra féll inn í opna viku í skólanum og tóku þeir þátt þeirri dagskrá, m.a. meistaramóti FAS í Hornafjarðarmanna, matreiðslunámskeiði og ratleik. Þá er orðinn fastur liður í opinni viku að nemendur ME, VA og FAS hittist á óhefðbundnu íþróttamóti og þetta árið hittust nemendur á Egilsstöðum. Ungverjarnir tóku þátt í nokkrum greinum og má fullyrða að FAS hafi átt fjölþjóðlegasta liðið því auk Íslendinga og Ungverja voru skiptinemarnir frá Sviss og Tælandi með í för, Goran frá Króatíu og Denis frá Bosníu.
Að sjálfsögðum sýndum við gestunum nokkrar af okkar náttúruperlum. Fórum t.d. í Geitafell, út á
Stokksnes og upp í Stafafellsfjöll þar sem m.a. voru bakaðar vöfflur í Araseli. Einnig fékk hópurinn að skoða fjós og fjárhús í Grænahrauni og Ásmundur Gíslason bauð þeim á hestbak. Álaeldið hjá Ara var skoðað, það var farið í heimsókn í Bestfisk og Valdi sýndi Hvanneyjuna frá stefni aftur í skut.
Bæjarfélagið sýndi mikla gestrisni og bauð hópnum í heimsókn til sín og færði þeim gjafir. Auk þess fékk hópurinn Pakkhúsið til afnota eitt kvöld þar sem hver úr íslenska hópnum kom með smáræði af íslenskum mat. Úr þessu varð fjölbreytt hlaðborð. Verst þótti gestunum lyktin af hákarlinum en flestir létu sig þó hafa það að smakka. Þá bauð bæjarfélagið hópnum að skoða sýningar og einnig var farið í siglingu út fyrir Ós. Það þótti gestunum frá landluktu Ungverjalandi mikil upplifun, enda landkrabbar hinir mestu. Bænum er hér með þökkuð velvild og aðstoð við komu gestanna.
Á leiðinni til Reykjavíkur var staldrað við hjá Gullfossi, Geysi og á Þingvöllum. Síðasti dagurinn var svo notaður til að skoða sig um á höfuðborgarsvæðinu. Orkuveita Reykjavíkur, Þjóðminjasafnið. Alþjóðaskrifstofa Háskólastigsins og Bessastaðir voru meðal viðkomustaða.
Oft á tíðum eru skilnaðarstundir erfiðar. Þó það hafi verið erfitt að kveðjast í Ungverjalandi í haust þá var það ekki síður erfitt núna. Margir hvarmar voru votir þegar kom að því að kveðjast. Eftir standa ánægjulegar og lærdómsríkar minningar og ekki síst vinskapur sem við erum sannfærð um mun haldast.
Að lokum viljum við þakka þeim fjölmörgu sem aðstoðuðu á einn eða annan hátt við móttöku Ungverjanna.

Þeim sem vilja lesa nánar um ferðalög hópsins er bent á síðu verkefnisins.

Halldór Tjörvi Einarsson
Hjördís Skírnisdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica