Mars
Haukafell, Magnús Jónasson (úr myndasafni)
Haukafell, Magnús Jónasson (úr myndasafni)
Það er mikið af trjám í Haukafelli

23.03.2006 Mars

Lesið í skóginn og tálgað í tré

Nú um helgina mun fara fram námskeið sem ber heitið "Lesið í skóginn og tálgað í tré". Á námskeiðinu læra þátttakendur tálgutækni og að vinna með ferskan við. Þeir læra að lesa í ólík form og vita um eiginleika einstakra trjátegunda, fjallað verður á námskeiðinu um grundvallaratriði skógarhirðu um leið og efni er sótt í skóg. Þátttakendur munu kynnast ólíkum þurrkaðferðum og eftirmeðhöndlun á þeim 4-5 gripum sem þeir vinna, ásamt því að fjallað er um umhirðu og umgengni við bitáhöld. Einnig verður fjallað um gildi skógarins fyrir mannlíf, menningu og efnahag með sérstakri áherslu á gildi upplifana í skógarumhverfi. Þátttakendur fá verkfæri og efni er innifalið í námskeiðinu en mælst er til að þátttakendur séu í vinnufötum og hafi með sér hlý föt og skó til skógarferðar. Vasahníf, vinnuhanska og svuntu er gott að hafa með sér. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Guðmundur Magnússon, handverksmaður á Flúðum.

Námskeiðið fer fram föstudaginn 24. frá kl. 16-19 og laugardaginn 25. mars frá kl. 9-16. Það verður haldið í smíðastofa grunnskólans, gamla vöruhúsinu, gengið inn bakdyramegin frá Svalbarði. Námskeiðið kostar 10.000 kr. 15.000 kr. fyrir hjón. Kaffi er innifalið og súpa og salatbar í hádeginu á laugardag. Skráning hjá Elínu S. Harðardóttur í síma 691 2246.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica